fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Pressan

Færsla Trumps um andlát Muellers vekur hörð viðbrögð – „Forsetinn er smásmugulegur, sjúkur og andstyggilegur maður“

Pressan
Sunnudaginn 22. mars 2026 09:21

Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Robert Mueller, fyrrverandi forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar (FBI), er látinn 81 árs að aldri. Eftir að tilkynnt var um andlátið biðu margir eftir viðbrögðum forsetans, Donalds Trump, en vitað var að honum var ekki hlýtt til Muellers.

Mueller byggði upp hryðjuverkadeild FBI eftir 11. september 2021 en í seinni tíð var hann hvað þekktastur fyrir að fara fyrir rannsókn dómsmálaráðuneytisins um meint afskipti Rússa af forsetakosningunum árið 2016. Rannsóknin vakti mikla athygli en fyrir þingnefnd tilkynnti hann árið 2019 skýrslu sína um forsetakosningarnar ekki hreinsa Trump af ásökunum um samvinnu við Rússa. Rannsóknin stóð yfir í tæp tvö ár og leiddi af sér ákærur gegn 34 einstaklingum, en sumir þeirra voru samherjar Trump.

Trump hefur kallað rannsóknina nornaveiðar og er forsetinn ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum hvað varðar meinta óvini sína.

Trump tjáði sig um andlátið í gær þar sem hann sagði hreinlega:

„Robert Mueller var að deyja. Gott, ég er feginn að hann sé dauður. Hann getur ekki lengur valdið saklausu fólki skaða.“

Þingmenn demókrata hafa harðlega gagnrýnt forsetann fyrir þessi viðbrögð. Þingmaðurinn Sam Moulton gengur svo langt að kalla færslu forsetans viðbjóðslega og kallar hann Trump „hræðilega mannveru“.

„Forsetinn er smásmugulegur, sjúkur og andstyggilegur maður,“ skrifaði þingmaðurinn Jason Crow og minnti á að Mueller hafi þjónað bandaríska hernum í Víetnamstríðinu á meðan Trump kom sér undan herkvaðningu.

Leiðtogi minnihlutans í öldungadeildinni, Chuck Schumer, segir að grimmd sé markmið forsetans.

„Grimmdin er tilgangurinn. Markmið Trumps er að dreifa athygli ykkar frá hækkandi bensínverði, tilgangslausu stríði hans, misbeitingu ICE og Epstein-skjölunum. Ekki gefa honum það sem hann vill og megi Robert Mueller, bandarískur landgönguliði og reyndur embættismaður, hvíla í friði.

Þingmaðurinn Dan Goldman skrifar: „Við syrgjum andlát Robert Muellers, sanns þjóns almennings, bronsstjörnuhafa úr Víetnamstríðinu, alríkissaksóknara, forstjóra FBI og óhlutdrægs sérstaks saksóknara. Samt sem áður fagnar forseti Bandaríkjanna andláti Muellers á ógeðfelldan hátt, bara því hann afhjúpaði tilraunir Trumps til að stela kosningunum árið 2016.“

Demókratar hafa eins bent á viðbrögð Repúblikana við andláti Charlie Kirk í september síðastliðnum. Þeir hafi brugðist ókvæða við færslum þar sem andláti áhrifavaldsins var fagnað. Væntanlega muni þeir sem hneyksluðust á viðbrögðunum þá bregðast illa við færslu forsetans, því annað væri hræsni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta eru áhrifin af að borða gríska jógúrt daglega

Þetta eru áhrifin af að borða gríska jógúrt daglega
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Orðrómarnir færast í aukana – Ætla Rússar að láta til skara skríða í Eistlandi?

Orðrómarnir færast í aukana – Ætla Rússar að láta til skara skríða í Eistlandi?
Pressan
Í gær

Forstjóri Netflix sagðist neita símtölum við Markle nema lögmaður sé viðstaddur

Forstjóri Netflix sagðist neita símtölum við Markle nema lögmaður sé viðstaddur
Pressan
Í gær

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni