fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Pressan

Evrópa er nú stærsti vopnainnflytjandi heims

Pressan
Sunnudaginn 22. mars 2026 13:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á síðustu fimm árum hefur Evrópa orðið stærsti vopnainnflytjandi heims. Stríðið í Úkraínu og uppbygging herafla margra Evrópuríkja er meginástæðan fyrir þessari þróun.

Þetta kemur fram í skýrslu frá Sænsku friðarrannsóknarstofnuninni, Sipri. Fram kemur að Evrópuríki hafi rúmlega þrefaldað vopnainnflutning sinn frá 2021 til 2025 miðað við tímabilið frá 2016 til 2020.

Mathew George, hjá Sipri, segir í fréttatilkynningu að vopnakaup Evrópu hafi aukið fjölda vopnasendinga á heimsvísu um tíu prósent.

„Vopnasendingar til Úkraínu síðan 2022 eru augljósasta ástæðan en flest önnur Evrópuríki eru einnig farin að flytja miklu meira inn af vopnum til að auka hernaðargetu sína vegna vaxandi ógnar frá Rússlandi,“ sagði hann.

9,7% af völlum vopnasendingum á árunum 2021 til 2025 fóru til Úkraínu að sögn Sipri.

Bandaríkin voru stærsti útflytjandi vopna í heiminum en 42% allra vopnasendinga komu frá Bandaríkjunum.

Frakkland er í öðru sæti yfir vopnaútflytjendur  en 9,8% af öllum vopnasendingum heimsins komu þaðan á tímabilinu og nam aukningin frá 2016-2020 tímabilinu 21%.

Það er bara í Evrópu og Norður- og Suður-Ameríku sem vopnainnflutningurinn hefur aukist. í öðrum heimshlutum dróst hann saman frá 2021-2025 miðað við 2016-2020.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Spaugileg mistök hjá verslun einni – Settu „hurðarhandföng“ í sýningargluggann

Spaugileg mistök hjá verslun einni – Settu „hurðarhandföng“ í sýningargluggann
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ekki henda bananahýðinu – Settu það í vatnsglas

Ekki henda bananahýðinu – Settu það í vatnsglas
Pressan
Í gær

Þetta eru áhrifin af að borða gríska jógúrt daglega

Þetta eru áhrifin af að borða gríska jógúrt daglega
Pressan
Í gær

Orðrómarnir færast í aukana – Ætla Rússar að láta til skara skríða í Eistlandi?

Orðrómarnir færast í aukana – Ætla Rússar að láta til skara skríða í Eistlandi?