fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Pressan

Börn sem læra þetta snemma á lífsleiðinni ná góðum árangri í lífinu

Pressan
Sunnudaginn 22. mars 2026 16:30

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru örugglega ekki margir sem efast um að lestur sé mikilvægur hluti af menntun og þroska barna. En ef foreldrar vilja ala upp duglegan lestrarhest, þá er ekki bara nóg að lesa góða nótt sögu.

Rannsóknir hafa sýnt að góður árangur á þessu sviði tengist ekki bara því að lesa fyrir börnin þegar þau fara upp í rúm. Þetta snýst um mörg lítil atriði alla daga. Þessi atriði móta heila barnsins.

Sérfræðingar í lesfærni og þroska barna hafa árum saman rannsakað hvernig börn verði betur læs og lesi meira.

Að geta lesið vel í grunnskóla bætir ekki bara einkunnir barnsins og faglega færni því niðurstöður rannsókna benda til að þetta sé sterkur þáttur varðandi langvarandi árangur byggðan á góðri menntun, betri vinnu og hærri launum. Allt hefst þetta með fimm einföldum atriðum frá foreldrunum.

Foreldrarnir tala við barnið þrátt fyrir að það babli bara – Áður en barnið segir fyrsta orðið, svara foreldrarnir því. Þeir túlka sérhvert hljóð sem boð um samtal. Þessi snemmbúnu samskipti styrkja grunnstoðir málsins og uppbyggingu heilans og um leið ýta þau undir djúp tilfinningaleg tengsl.

Spyrja margra spurninga og bíða eftir svari – Í staðinn fyrir að tala bara, spyrja foreldrar spurninga á borð við: „Hvað er þetta?“, eða „Sérðu hundinn?“ og bíða eftir svari frá barninu. Þetta hlé er mikilvægt, því það gefur barninu tíma til að vinna úr og svara. Það styrkir getu þess til að hugsa og á sinn þátt í að auka orðaforðann.

Þeir tala um hljóð bókstafanna, ekki bara nöfnin þeirra – Auk þess að kenna barninu að bókstafurinn „A“ heiti „A“, útskýra foreldrarnir að hann hljómar. Í eldhúsinu, búðinni eða þegar leikið er, nota foreldrarnir hvert tækifæri til að tengja bókstaf og hljóð. Það er gott að gera þetta, því þetta er mikilvægt skref við að læra að skilja orð þegar lesið er.

Þeir leika með orð – Rím, orðatiltæki og söngvar eru ekki bara skemmtilegir, heldur hjálpa þeir börnum að greina hljóðin í orði. Hljóðfræðileg meðvitund er mjög mikilvæg þegar kemur að því að læra að lesa. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar reyni að gera orðin að leik því það þykir barninu meira spennandi.

Þeir notfæra sér lestrarmöguleikann allan daginn – Þrátt fyrir að það sé gagnlegt að lesa upphátt fyrir börnin á kvöldin, þá gera sumir foreldrar gott betur en það. Þeir taka upp bók þegar það er baðtími, í biðstofunni hjá lækninum eða á meðan matur er eldaður. Sérhvert augnablik er gott fyrir lestur, tal og til að læra ný orð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Karen komst að leyndarmáli kærastans – Það kostaði hana lífið

Karen komst að leyndarmáli kærastans – Það kostaði hana lífið
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þess vegna áttu ekki að drekka vatn áður en þú ferð í háttinn

Þess vegna áttu ekki að drekka vatn áður en þú ferð í háttinn
Pressan
Í gær

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur
Pressan
Í gær

Þetta áttu aldrei að spyrja gervigreind um

Þetta áttu aldrei að spyrja gervigreind um
Pressan
Í gær

Kom dómsalnum í opna skjöldu þegar hún játaði hvað hún gerði foreldrum sínum fyrir 15 árum

Kom dómsalnum í opna skjöldu þegar hún játaði hvað hún gerði foreldrum sínum fyrir 15 árum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dularfull veðmál í kringum drápið á Khameini og ránið á Maduro – Græddu þeir milljónir á innherjaupplýsingum?

Dularfull veðmál í kringum drápið á Khameini og ránið á Maduro – Græddu þeir milljónir á innherjaupplýsingum?