fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Pressan

Hefur þú tekið eftir svörtu blettunum á framrúðunni? – Þeir gegna mikilvægu hlutverki

Pressan
Laugardaginn 21. mars 2026 14:30

Vissir þú af þessum svörtu blettum?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir setjast upp í bílinn sinn dag hvern án þess að hugsa neitt sérstaklega út í að í jaðri framrúðunnar eru litlir svartir blettir. Þeir geta við fyrstu sýn vera smáatriði frá bílhönnuðinum en í raun gegna þeir mikilvægu tæknilegu hlutverki.

Svört rönd og litlir svartir blettir tryggja að framrúðan situr föst og vernda samtímis efnin sem halda rúðunni á sínum stað í yfirbyggingu bílsins. Lista-a.pt skýrir frá þessu.

Í nútímabílum er framrúðan yfirleitt úr lagskiptu gleri. Með fram kantinum er svört rönd og inni í henni er svæði með litlum svörtum blettum. Þetta er keramiklag sem er sett á glerið í framleiðsluferlinu og er síðan brennt fast við það við háan hita. Þetta gerir að verkum að svæðið verður mjög slitsterkt og þolir vel veður og hitabreytingar.

Svarta röndin og punktarnir eru því hluti af tæknilegri uppbyggingu glersins.

Svarta röndin með fram kanti glersins myndar stöðugt og ógagnsætt svæði. Þetta svæði er fest við yfirbyggingu bílsins með sterku lími.

Svörtu punktarnir tryggja að rúðan festist vel því límið helst betur á þeim en hreinu gleri. Svarta lagið verndar einnig límið gegn útfjólubláum geislum sólarinnar en þeir brjóta efni niður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Kona dæmd í fangelsi fyrir að saka tíu karla ranglega um nauðgun – Misstu vinnu og umgengni við börn sín

Kona dæmd í fangelsi fyrir að saka tíu karla ranglega um nauðgun – Misstu vinnu og umgengni við börn sín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dyggur stuðningsmaður Pútíns snýst gegn honum í fordæmalausri yfirlýsingu

Dyggur stuðningsmaður Pútíns snýst gegn honum í fordæmalausri yfirlýsingu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Netanyahu reynir að sanna að hann sé hvorki dauður né gervigreind – Netverjar eru ekki sannfærðir

Netanyahu reynir að sanna að hann sé hvorki dauður né gervigreind – Netverjar eru ekki sannfærðir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump úthúðar „bandamönnum“ í NATO og segist enga hjálp þurfa lengur – „VIÐ ÞURFTUM HANA ALDREI!“

Trump úthúðar „bandamönnum“ í NATO og segist enga hjálp þurfa lengur – „VIÐ ÞURFTUM HANA ALDREI!“