fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Pressan

Sorglegar vendingar í máli 85 ára afa sem var rænt

Pressan
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn 85 ára gamli Chris Baghsarian, sem var numinn á brott af heimili sínu í North Ryde-hverfinu í Sydney í Ástralíu fyrir tíu dögum fannst látinn í morgun.

Það var snemma að morgni föstudagsins 13. febrúar að lögregla fékk tilkynningu um að þrír menn hefðu ráðist inn til Chris og borið hann út af heimili sínu. Fljótlega eftir að rannsókn hófst komst lögregla að því að mannræningjarnir hefðu farið mannavillt og að líkindum ætlað að ræna einstaklingi sem tengist Alameddine-glæpasamtökunum í vesturhluta borgarinnar.

Sjá einnig: Virðast hafa farið mannavillt þegar þeir rændu 85 ára afa – Lögregla biðlar til mannanna

„Baghsarian er afi sem er ekki tengdur á neinn hátt inn í glæpaheiminn,“ sagði Andrew Marks, yfirmaður glæpadeildar lögreglu, á blaðamannafundi í síðustu viku. „Ég er milljón prósent viss um að þeir séu með rangan mann,” bætti hann við.

Í fréttum ástralskra fjölmiðla kemur fram að lík Chris hefði fundist skammt frá Lynwood-golvellinum og var það starfsmaður golfvallarins sem gekk fram á það. Grunur leikur á að Chris hafi verið myrtur sama dag og honum var rænt.

Á blaðamannafundi í Ástralíu í dag sagði Marks að enginn hefði verið handtekinn vegna morðsins en rannsókn sé enn í fullum gangi. „Við munum beita öllum tiltækum úrræðum til að bera kennsl á þá sem bera ábyrgð á þessu og draga þá til ábyrgðar,” sagði hann.

Í frétt Daily Mail kemur fram að fjölskylda Chris hafi ekki fengið neina beiðni um lausnargjald, en maður að nafni Dimitri Speanyan hafi aftur á móti fengið slíka beiðni. Sá var eitt sinn tengdur inn í undirheima Ástralíu og var búsettur í sömu götu og Chris. Fóru mannræningjarnir fram á að fá 50 milljónir ástralskra dollara frá Dimitri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Leyniþjónustan banar manni í bústað Trump

Leyniþjónustan banar manni í bústað Trump
Pressan
Í gær

Ógnvekjandi þróun – Sprenging í fjölda kynferðisbrota gegn börnum

Ógnvekjandi þróun – Sprenging í fjölda kynferðisbrota gegn börnum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir ekki óeðlilegt að fólki líki ekki við makann

Segir ekki óeðlilegt að fólki líki ekki við makann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er kynlífsstellingin sem körlum og konum þykir „ein sú versta“

Þetta er kynlífsstellingin sem körlum og konum þykir „ein sú versta“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tannlæknir segir að þetta ástand í munninum geti verið fyrsta merkið um alvarlegan sjúkdóm

Tannlæknir segir að þetta ástand í munninum geti verið fyrsta merkið um alvarlegan sjúkdóm
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er ástæðan fyrir að ekki á að nota hraðprógramm þvottavélarinnar

Þetta er ástæðan fyrir að ekki á að nota hraðprógramm þvottavélarinnar