fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Fólk sem fer seint í háttinn er oft með þetta sérstaka persónuleikaeinkenni

Pressan
Mánudaginn 23. febrúar 2026 06:00

Kannski fór hún seint í háttinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er áliðið en nýja sjónvarpsþáttaröðin er svo spennandi. Maður hugsar kannski með sér: „Einn þáttur enn er í lagi“ og síðan horfir maður á einn til viðbótar. Margir kannast eflaust við að hafa lent í þessu.

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar þá segir það svolítið um persónuleika viðkomandi ef háttatímanum er frestað. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ungt fólk, sem frestar háttatímanum, hefur frekar tilhneigingu til að vera þunglynt.

390 ungir fullorðnir tóku þátt í rannsókninni, meðalaldurinn var 24 ár. Fólkið svaraði spurningaskema sem átti að skera úr um hvort það væri „kvöldtýpa“ eða „morguntýpa“.

„Kvöldtýpa“ nær yfir þá sem vilja vaka langt fram eftir kvöldi og sofa lengi daginn eftir. „Morguntýpa“ nær yfir þá sem gera hið gagnstæða og fara snemma á fætur.

Mat var lagt á fimm persónuleikaeinkenni fólks:

Taugaveiklunarkennd en hún snýr að tilfinningalegu ójafnvægi og stjórn á tilfinningalegum viðbrögðum.

Úthverfu sem einkennist af virkni viðkomandi, ævintýralöngun og gleði.

Opin fyrir upplifunum og sýnir sveigjanleika, sköpunargleði og er forvitin.

Vingjarnleiki þar sem hreinskilni, örlæti og traust koma við sögu.

Samviskusemi þar sem áhersla er lögð á skipulag, skyldurækni, metnað og sjálfsaga.

Þátttakendurnir fylltu einnig út svefndagbók í fjórtán daga til að hægt væri að sjá hversu oft þeir frestuðu háttatímanum.

Niðurstöðurnar eru að þeir sem seinka háttatímanum oft, eru almennt síður líklegir til að leita eftir spennandi eða þægilegum viðburðum sem þeir geta tekið þátt í.

Steven Carlson, aðalhöfundur rannsóknarinnar, skýrði frá þessu í samtali við Eurek Alert.

Hann sagði að það að fara seint í háttinn tengist því að fólk sé síður opið og samviskusemi þess sé minni en hjá þeim sem fara fyrr í háttinn. Þetta geti gert fólkinu erfitt fyrir við að halda sig við holla rútínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana