fbpx
Laugardagur 21.febrúar 2026
Pressan

Miðdegisblundur getur bætt getu heilans til að læra

Pressan
Laugardaginn 21. febrúar 2026 19:10

Mynd: Unsplash.com.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nýrri rannsókn var markmiðið að komast að því hvort stuttur miðdegisblundur geti hjálpað heilanum  við að sanka að sér nýrri þekkingu.

Tuttugu fullorðnir tóku þátt í rannsókninni sem stóð yfir í tvo daga og fór fram í svefnrannsóknarstofu. Annan daginn fengu þeir sé blund á milli klukkan 13 og 14 en hinn daginn var enginn blundur í boði.

Þeir sváfu að meðaltali í 43 mínútur. Vísindamenn mældu heilastarfsemi þeirra báða dagana. Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Neurolmage.

Heilanum berast mörg skilaboð og upplýsingar daglega. Taugafrumurnar senda hver annarri skilaboð í sífellu. Þegar við lærum eitthvað nýtt breytist tengingin á milli taugafrumnanna.

Niðurstöður rannsóknarinnar voru að þátttakendurnir áttu auðveldara með að tileinka sér nýja þekkingu eftir að hafa fengið sér blund. Blundur getur þannig eflt getu heilans til að læra.

Simen Berg Saksvik, svefnsérfræðingur hjá NTNU og St. Olavs sjúkrahúsinu í Noregi, sagði í samtali við Forskning.no að rannsóknin geti varpað ljósi á af hverju svefn að degi til hafi áður sýnt að hann hafi jákvæð áhrif. Hann lagði um leið áherslu á að nætursvefn skipti meira máli en blundur að degi til.

Ráðlögð lengd miðdegisblunds er 20 mínútur, sem er styttra en meðalsvefntími þátttakendanna.

Fólk sem glímir við svefnvandamál eða andleg veikindi ætti að forðast að sofa að degi til því það getur gert því erfiðara fyrir við að sofna að kvöldi til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Óhugnanlegt myndband úr verslun sýnir mann reyna að ræna eins árs stúlku

Óhugnanlegt myndband úr verslun sýnir mann reyna að ræna eins árs stúlku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir á yfir höfði sér 15 ára fangelsi eftir að hún skildi 1 árs son sinn eftir í sjóðheitum bíl á meðan hún fékk bótox í varirnar

Móðir á yfir höfði sér 15 ára fangelsi eftir að hún skildi 1 árs son sinn eftir í sjóðheitum bíl á meðan hún fékk bótox í varirnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leitaði til lögreglu eftir að hann henti óvart gullinu sínu í ruslið – Sá fram á 18 milljón króna tjón

Leitaði til lögreglu eftir að hann henti óvart gullinu sínu í ruslið – Sá fram á 18 milljón króna tjón
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tveir ICE-fulltrúar sendir í leyfi og sakaðir um að bera ljúgvitni eftir að innflytjandi var skotinn í fótinn

Tveir ICE-fulltrúar sendir í leyfi og sakaðir um að bera ljúgvitni eftir að innflytjandi var skotinn í fótinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvorki rauður eða gulur – Þetta er liturinn sem gáfað fólk kýs helst að sögn sálfræðinga

Hvorki rauður eða gulur – Þetta er liturinn sem gáfað fólk kýs helst að sögn sálfræðinga
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hver er dularfulli Þjóðverjinn sem kemur fyrir 7.461 sinni í Epstein-skjölunum?

Hver er dularfulli Þjóðverjinn sem kemur fyrir 7.461 sinni í Epstein-skjölunum?