fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Pressan

Handtekin eftir sérkennilegan gjörning í tveimur Airbnb-íbúðum

Pressan
Þriðjudaginn 24. mars 2026 06:30

Nicolette virtist ekki skammast sín mikið eftir að lögregla handtók hana.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona í Flórída hefur verið handtekin og ákærð fyrir eignaspjöll í tveimur íbúðum í Pensacola sem hún tók á leigu á Airbnb. Tjónið sem konan er sögð hafa valdið nemur þúsundum dollara.

Hin grunaða, Nicolette Keough, 31 árs, var handtekin eftir að eigandi leiguhúsnæðis lagði fram kæru um miðjan mars. Í frétt People kemur fram að eigandinn hafi kært málið til lögreglu eftir að hafa fengið upplýsingar um að Keough hefði kastað af sér þvagi á fjölda muna í íbúðinni.

Við nánari athugun fann eigandinn myndskeið sem sýndu konu, sem sögð er vera Keough, fremja verknaðinn. Myndböndin höfðu verið birt á vefsíðu með efni fyrir fullorðna. Þá tilkynnti eigandinn einnig að sterk þvaglykt hefði verið í íbúðinni eftir dvöl hennar.

Lögregla segir að sambærilegt atvik hafi átt sér stað í öðru Airbnb-húsnæði í eigu sama aðila í sömu götu. Samkvæmt lögregluskýrslu skemmdust meðal annars stóll, teppi, ritvél, borðstofustólar, kaffivél, rúm, sjónvarp, plötuspilari og brauðrist.

Talsmaður lögreglunnar í Pensacola sagði í yfirlýsingu að Keough hefði verið handtekin vegna gruns um alvarleg eignaspjöll þar sem tjónið væri talið nema meira en 3.000 Bandaríkjadölum. Konan er talin hafa tekið myndböndin upp í þeim tilgangi að selja þau til áhugasamra.

Nicolette hefur verið látin laus gegn tryggingu, að því er segir í frétt People.

Talsmaður Airbnb fordæmdi málið í samtali við miðilinn og tók fram að hin grunaða hefði verið útilokuð frá því að leigja aftur íbúðir í gegnum fyrirtækið. Þá sagði hann að Airbnb vinni nú að því að aðstoða eigandann við að fá tjónið bætt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Öryggismálasérfræðingur segir að heimsbyggðin þurfi að búa sig undir óhugsandi martröð

Öryggismálasérfræðingur segir að heimsbyggðin þurfi að búa sig undir óhugsandi martröð
Pressan
Í gær

Þessi merki um D-vítamínskort geta sést á húðinni og fótunum

Þessi merki um D-vítamínskort geta sést á húðinni og fótunum
Pressan
Í gær

Með biblíuna undir handleggnum ætla Demókratar að gera það ómögulega í Texas

Með biblíuna undir handleggnum ætla Demókratar að gera það ómögulega í Texas
Pressan
Í gær

98% kvenna finnst karlar með þetta áhugamál vera þeir mest aðlaðandi

98% kvenna finnst karlar með þetta áhugamál vera þeir mest aðlaðandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Karen komst að leyndarmáli kærastans – Það kostaði hana lífið

Karen komst að leyndarmáli kærastans – Það kostaði hana lífið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna áttu ekki að drekka vatn áður en þú ferð í háttinn

Þess vegna áttu ekki að drekka vatn áður en þú ferð í háttinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta áttu aldrei að spyrja gervigreind um

Þetta áttu aldrei að spyrja gervigreind um