
Fundurinn átti sér stað í garði við heimili fjölskyldu einnar í þorpinu Clyst Honiton í Devon. Labradorhundinum Stanley þykir fátt skemmtilegra en að spóka sig um í garðinum við heimili sitt og hefur hann átt það til að róta í jarðveginum á sama stað í garðinum. Hann gerði óvenjulega uppgötvun fyrir skemmstu þegar hann gróf upp dularfulla flösku.
Eigandi hundsins, Paul Phillips, segir við breska fjölmiðla að hann hafi í fyrstu talið að um rör eða brot úr frárennslislögn væri að ræða. Þegar hann skoðaði málið nánar kom hins vegar í ljós að um var að ræða vel varðveitta bláa glerflösku með áletruninni „Not To Be Taken“ en um er að ræða viðvörun sem var algeng á eitruðum efnum á 19. öld.
Sagnfræðingar telja að ekki sé um neina venjulega glerflösku að ræða, heldur leikur grunur á að flaskan tengist frægu morðmáli frá árinu 1865. Þá var kona að nafni Mary Ann Ashford sakfelld fyrir að hafa blandað eitri út í te eiginmanns síns, Williams Ashford.
Talið er að hún hafi framið morðið til að geta erft eignir hans og hafið nýtt líf með ungum elskhuga sem starfaði fyrir eiginmanninn.
Morðið vakti mikla athygli á sínum tíma, ekki síst vegna opinberrar aftöku Ashford árið eftir. Hún var hengd fyrir framan 20.000 manns við sýslufangelsið í Exeter. Frásagnir samtímans herma að aftakan hafi gengið illa og að það hafi tekið hana nokkrar mínútur að deyja. Sagnfræðingar hafa síðar bent á að slíkar aftökur hafi haft áhrif á almenningsálit og átt þátt í að opinberum aftökum var að lokum hætt í Bretlandi.
Phillips segir að hann hafi rifjað upp sögur um þessa hengingu í þorpinu og fundið gamlar blaðagreinar sem staðfesta að hjónin hafi búið skammt frá núverandi heimili hans, nærri lögreglustöð staðarins. Landareignir á svæðinu voru áður fyrr mun víðáttumeiri en þær eru í dag og er talið hugsanlegt að garðurinn við heimili Phillips hafi á þessum tíma tilheyrt landareign Mary Ann og eiginmanns hennar.
Eins og gefur að skilja er kannski erfitt að staðfesta að flaskan hafi verið notuð í umræddu morðmáli. Það að hún hafi verið grafin í jörðu gefur þó til kynna að hún hafi ekki verið notuð í lögmætum tilgangi eða að einhver hafi ekki viljað að hún fyndist. Phillips vonast til þess að sagnfræðingar geti varpað frekara ljósi á málið.
Í fréttum breskra fjölmiðla er haft eftir Phillips að síðan að flaskan fannst sé Stanley steinhættur að grafa á þessum stað í garðinum, rétt eins og starfi hans þar sé lokið.