fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Pressan

Fundu„óhugnanlegt“ falið herbergi í Airbnb-íbúðinni: „Örugglega notað í eitthvað ólöglegt“

Pressan
Mánudaginn 23. mars 2026 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að uppgötva leyniherbergi í húsinu sem þú varst að kaupa getur verið skemmtilegt, aukafermetrar sem má nýta í eitthvað skemmtilegt. Að finna slíkt í Airbnb íbúð sem þú leigir í fríinu þínu hljómar hins vegar eins og góð byrjun á hryllingsmynd.

TikTok-notandinn @mich3113.0 birti myndband sem sýnir leiguhúsnæði í Dallas í Texas með falinni hurð á óvæntum stað. Myndbandið, sem hefur fengið nærri 20 milljónir áhorfa, sýnir það sem virðist vera venjulegt svefnherbergi. Myndavélin sýnir í kringum rúmið og síðan upp í loftið þar sem hurð er falin.

Ekki er um háaloft að ræða eins og ferðamennirnir komust að þegar tveir þeirra aðstoðuðu þann þriðja við að athuga málið. Um var að ræða herbergi, en svo virðist sem gleymst hafi að loka hurðinni þangað inn sem vakti óhug gestanna.

@mich3113.0 WORST/ creepiest air bnb ever.. #fyp #foryou #scary #secretroom #airbnb ♬ original sound – mich3113.0


Netverjar deildu að vanda visku sinnu í nær 2800 athugasemdum.

„Það er engin ástæða fyrir því að hluti af húsinu ætti að vera svona. Ekki nema það sé eitthvað slæmt í gangi. Svo ég veit 100% að á ákveðnum tímapunkti var þetta notað í eitthvað sem er ekki löglegt,“ benti einn netverji á, viss í sinni sök.

Annar deildi svipaðri reynslu: „Airbnb-ið mitt var meðfullt af litlum hurðum sem leiddu að neðanjarðargöngum og þau voru ekki lokuð eða neitt og þegar ég vildi fara sögðu allir að ég væri að vera dramatísk. Sjónvarpið kveikti á sér sjálfkrafa og fjarstýringin hreyfðist í herberginu mínu (ég snerti það ekki allan tímann sem ég var þar) og ég heyrði klósettið sturta af sjálfu sér (það var ekki sjálfvirkt og enginn annar var vakandi) en auðvitað er ég brjálaður fyrir að vera tortrygginn gagnvart Airbnb.“

„Bókaðu bara hótel, maður, þetta er ekki þess virði,“ ráðlagði einhver annar.

TikTokerinn birti nokkur eftirfylgnimyndbönd sem sýndu ferðalangana sofa í sama herbergi með læsta hurð og svo annað sem sýndi eignina, sem hann varaði aðra við að bóka, sagði að myndirnar af eigninni væru ekki nákvæmar, það væru blettir á rúminu,og þeim hefði fundist eignin „mjög gömul og niðurdrepandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sagt að hún væri geðveik þegar hún viðraði áhyggjur af undarlegum hljóðum á heimilinu – Síðan kom sannleikurinn í ljós

Sagt að hún væri geðveik þegar hún viðraði áhyggjur af undarlegum hljóðum á heimilinu – Síðan kom sannleikurinn í ljós
Pressan
Í gær

Byrjar þú auðveldlega að gráta? – Þetta þýðir það að sögn sálfræðings

Byrjar þú auðveldlega að gráta? – Þetta þýðir það að sögn sálfræðings
Pressan
Í gær

Raunveruleikastjarna ákærður fyrir barnaníð – Viðurkenndi að hafa ekki haft góðan ásetning

Raunveruleikastjarna ákærður fyrir barnaníð – Viðurkenndi að hafa ekki haft góðan ásetning
Pressan
Í gær

Færsla Trumps um andlát Muellers vekur hörð viðbrögð – „Forsetinn er smásmugulegur, sjúkur og andstyggilegur maður“

Færsla Trumps um andlát Muellers vekur hörð viðbrögð – „Forsetinn er smásmugulegur, sjúkur og andstyggilegur maður“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump er með „dómsdagsflugvélina“ tilbúna

Trump er með „dómsdagsflugvélina“ tilbúna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Spaugileg mistök hjá verslun einni – Settu „hurðarhandföng“ í sýningargluggann

Spaugileg mistök hjá verslun einni – Settu „hurðarhandföng“ í sýningargluggann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hefur þú tekið eftir svörtu blettunum á framrúðunni? – Þeir gegna mikilvægu hlutverki

Hefur þú tekið eftir svörtu blettunum á framrúðunni? – Þeir gegna mikilvægu hlutverki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta eru áhrifin af að borða gríska jógúrt daglega

Þetta eru áhrifin af að borða gríska jógúrt daglega