
Stúlkan, JackLynn Blackwell, var samkvæmt frásögn foreldra sinna lífsglöð og náin fjölskyldu sinni. Hún hafði mikinn áhuga á tónlist og söng, naut þess að taka þátt í karaoke með foreldrum sínum og dreymdi um að verða stjarna. Fjölskyldan lýsir því að þau þrjú hafi verið afar samrýnd og gert flest saman, allt frá ferðalögum til notalegra samverustunda heima fyrir.
Eins og mörg börn á hennar aldri átti JackLynn snjallsíma og eyddi hún töluverðum tíma í að horfa á myndbönd á netinu. Foreldrarnir segja að hún hafi haft gaman af svokölluðum áskorunum sem gengu manna á milli á samfélagsmiðlum og að slíkt hafi lengi virst saklaust. Sú sýn breyttist hins vegar skyndilega fyrir um mánuði síðan.
Að morgni dagsins sem slysið varð var allt með hefðbundnum hætti. JackLynn fór út í bakgarð heimilis fjölskyldunnar að leika sér eins og hún gerði oft áður. Þegar faðir hennar, Curtis Blackwell, tók eftir óvenjulegri þögn fór hann að gá að henni og fann hana skammt frá bílskýli við húsið. Hún var þá meðvitundarlaus með snúru vafða um hálsinn.
„Ég mun aldrei gleyma þessum degi. Þetta mun spilast aftur í hausnum á mér það sem ég á eftir ólifað,“ segir Curtis um augnablikið þegar hann kom að dóttur sinni.
Hann reyndi þegar í stað að bjarga henni, losaði snúruna og hóf endurlífgun þar til viðbragðsaðilar komu á vettvang. Þrátt fyrir skjót viðbrögð tókst ekki að endurlífga stúlkuna og hún var úrskurðuð látin síðar sama dag.
Í kjölfar harmleiksins hafa foreldrar hennar reynt að átta sig á hvað gerðist. Þeir telja líklegt að stúlkan hafi verið að herma eftir hættulegri netáskorun sem felst í því að þrengja að öndunarvegi sínum tímabundið til að framkalla tímabundna vellíðunartilfinningu eða svima. Ákorunin, sem gjarnan kallast blackout-áskoruninin, hefur verið í dreifingu á neitnu um árabil að því er fram kemur í frétt CBS News.
Samkvæmt upplýsingum bandarísku sóttvarnastofnunarinnar, CDC, sem CBS vitnar til, hafa tugir barna og unglinga látist í tengslum við sambærilegar áskoranir. Foreldrar JackLynn benda á að börn á aldrinum níu til fjórtán ára séu sérstaklega viðkvæm fyrir áhrifum frá netinu þar sem heilinn er enn í mótun.
Þau benda jafnframt á að efni sem virðist barnvænt geti fljótt vikið fyrir hættulegri og óviðeigandi myndböndum vegna þess hvernig samfélagsmiðlar stýra því sem notendum er sýnt. Þrátt fyrir að sumir miðlar hafi gripið til ráðstafana, svo sem að birta viðvaranir eða takmarka leitir að slíkum áskorunum, telja foreldrarnir að meira þurfi til.
Aðeins mánuði eftir andlátið segjast þau staðráðin í að nýta reynslu sína til að vekja athygli á málinu og stuðla að breytingum. Þau kalla eftir skýrari reglum, auknu eftirliti og meiri ábyrgð tæknifyrirtækja svo draga megi úr líkum á að sambærileg slys endurtaki sig.
Foreldrarnir segja að þrátt fyrir mikla og djúpa sorg vilji þau leggja sitt af mörkum til að vernda önnur börn. Að þeirra mati getur aukin vitund meðal foreldra, skóla og samfélagsins í heild skipt sköpum þegar kemur að öryggi barna á netinu.