fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Pressan

Með biblíuna undir handleggnum ætla Demókratar að gera það ómögulega í Texas

Pressan
Sunnudaginn 22. mars 2026 13:30

James Talarico. Mynd: Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

James Talarico er maðurinn sem á að reyna að hæfa Repúblikana þar sem þeir finna allra mest til. Í bandarískum stjórnmálum er kristnin venjulega heimavöllur Repúblikana en þegar Talarico tekur til máls, þá er staðan önnur.

Hann notar biblíuna til að ræða um fátækt, skuldir og umhyggju fyrir ókunnugu fólki.

„Jesús hefði getað sagt við okkur að við eigum að elska nánustu fjölskyldumeðlimi okkar eða nána vini. En hann sagði okkur að við eigum að elska nágranna okkar. Það er í eðli sínu svolítið opinbert,“ er meðal þess sem hann hefur sagt á kosningaferðalögum sínum.

Repúblikanar ráða lögum og lofum í Texas en Talarico er samt sem áður ætlað að takast á hendur verkefni sem virðist útilokað að geti heppnast. Að Demókratar nái aftur völdum og tryggi sér mikilvægt öldungadeildarþingsæti í ríkinu.

Þegar Demókratar kusu hann sem frambjóðanda sinn í þingkosningunum í nóvember næstkomandi, gat það lyktað af tilraun til velja þann frambjóðanda sem er næst miðju stjórnmálanna. Sá frambjóðandi á mestu möguleikana á að fá suma af kjósendum Donald Trump til að skipta um skoðun.

Talarico talar sjaldan um Trump. Hann talar meira um muninn á þeim sem eiga mest og þeim sem eiga minnst.

Ef kíkt er bak við stefnu Talarico og tilvitnana í guðspjöllin, þá er hann mun framsæknari. Það gæti orðið hans stærsti veikleiki þegar kosið verður til þings í nóvember.

Talarico er 35 ára og fæddist í Texas. Hann er fyrrum kennari og menntaður prestur í mótmælendakirkjunni. Hann fléttar framsækni sinni saman við kristna trú sína.

„Hinn raunverulegu átök hér í landinu eru ekki vinstri vængurinn á móti hægri vængnum. Það er efsta lagið á móti því neðsta,“ sagði hann nýlega í Austin í Texas.

Talarico berst gegn milljarðamæringum og valdaelítunni sem hann telur kljúfa þjóðina um leið og hún tekur peninga úr skólakerfinu og heilbrigðiskerfinu og lækkar skatta sjálfs síns.

Hann er ekkert að skafa utan af hlutunum og segir einfaldlega: „Það eru hinir ofurríku sem eru þeir slæmu.“

Repúblikanar hafa tvinnað kristindóminn saman við þjóðernishyggju og menningarbaráttu en Talarico reynir að tengja hann við félagslegt réttlæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Trump er með „dómsdagsflugvélina“ tilbúna

Trump er með „dómsdagsflugvélina“ tilbúna
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Spaugileg mistök hjá verslun einni – Settu „hurðarhandföng“ í sýningargluggann

Spaugileg mistök hjá verslun einni – Settu „hurðarhandföng“ í sýningargluggann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ákærð fyrir morð eftir að hafa tekið lyf sem framkallaði fósturlát

Ákærð fyrir morð eftir að hafa tekið lyf sem framkallaði fósturlát
Pressan
Fyrir 2 dögum

Faðir fangelsaður eftir að áverkar fundust á þriggja mánaða syni hans

Faðir fangelsaður eftir að áverkar fundust á þriggja mánaða syni hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hommaklám leysti 35 ára gamalt sakamál – „Ég er virkilega ánægður að þessi saga fái nú að heyrast“

Hommaklám leysti 35 ára gamalt sakamál – „Ég er virkilega ánægður að þessi saga fái nú að heyrast“