fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Pressan

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur

Pressan
Laugardaginn 21. mars 2026 17:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag er staðan þannig hjá mörgum að þeir nota snjallsímann sinn mikið, oft í margar klukkustundir á dag. Vísindamenn við Oxfordháskóla rannsökuðu nýlega hvað áhrif það hefur á heilann ef fólk tekur sér algjöra hvíld frá snjallsímanum í tvær vikur.

Niðurstaða þeirra er að á frekar stuttum tíma getur slík hvíld haft áhrif á heilastarfsemina og bætt einbeitinguna og andlega vellíðan. Verkkouutiset skýrir frá þessu.

Í rannsókninni var snjallsímum þátttakendanna breytt í frekar hefðbundinn síma um hríð. Lokað var á Internettenginguna en áfram var hægt að nota símana til símtala og til að senda textaskilaboð. Ekki var hægt að nota samfélagsmiðla, fréttastreymi eða aðrar álíka þjónustur á Internetinu.

Ef þátttakendurnir þurftu nauðsynlega að nota Internetið, þá varð það að fara fram í gegnum tölvu.

Niðurstöður rannsóknarinnar eru að frekar stuttur tími, án stöðugs aðgengis að Internetinu, hafi töluverð áhrif.

Eftir aðeins tvær vikur hafði orðið breyting til batnaðar á andlegri vellíðan þátttakendanna sem og tilfinningalegri vellíðan þeirra og þeir áttu auðveldara með að viðhalda athyglinni. Margir þátttakendanna sögðu að þeir ættu auðveldara með að einbeita sér dags daglega.

Allt að 91% þátttakendanna í rannsókninni upplifðu bætingu á ákveðnum sviðum. Vísindamennirnir segja að það geri niðurstöðurnar mjög athyglisverðar að breytingar hafi orðið hjá fólkinu á aðeins tveimur vikum, það sýni að heilinn bregðist hratt við breytingum á farsímavenjum.

Hugsanleg skýring á því er að þegar við verðum ekki fyrir stöðugri stafrænni áreiti skapist rými fyrir annað. Þegar síminn er ekki lengur stöðug uppspretta samfélagsmiðla, frétta og afþreyingar, eyði margir tímanum frekar í að hreyfa sig, vera úti í náttúrunni eða með öðru fólki.

Rannsóknin er innlegg í sífellt meiri umræðu um hlutverk snjallsíma í hversdagslífi okkar. Snjallsímar auðvelda okkur margt og fyrir marga eru þeir ómissandi verkfæri í vinnunni og utan hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn
Pressan
Í gær

Ákærð fyrir morð eftir að hafa tekið lyf sem framkallaði fósturlát

Ákærð fyrir morð eftir að hafa tekið lyf sem framkallaði fósturlát
Pressan
Í gær

Faðir fangelsaður eftir að áverkar fundust á þriggja mánaða syni hans

Faðir fangelsaður eftir að áverkar fundust á þriggja mánaða syni hans
Pressan
Í gær

Hommaklám leysti 35 ára gamalt sakamál – „Ég er virkilega ánægður að þessi saga fái nú að heyrast“

Hommaklám leysti 35 ára gamalt sakamál – „Ég er virkilega ánægður að þessi saga fái nú að heyrast“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þolandi nýnasistanjósnara fær afsökunarbeiðni og bætur

Þolandi nýnasistanjósnara fær afsökunarbeiðni og bætur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum