fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Pressan

Þetta áttu aldrei að geyma í pappakössum

Pressan
Laugardaginn 21. febrúar 2026 15:30

Það má ekki geyma hvað sem er í pappakössum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á flestum heimilum eru líklega pappakassar í geymslunni eða uppi á lofti. Í þeim er líklega eitthvað sem fólk tímir ekki að henda, gleymdist að taka upp úr þeim þegar síðast var flutt og kannski er myntsafnið hans afa gamla í pappakassa uppi á lofti.

En það má ekki geyma hvað sem er í pappakössum eftir því sem segir í umfjöllun Southern Living. Segir miðillinn að sumt eigi alls ekki að geyma í pappakössum því það geti farið illa með hlutina.

Pappakassar eru ódýrir, auðvelt er að verða sér úti um þá og oft er hægt að nota þá aftur og aftur. En þeir eru ekki örugg geymslulausn því pappi brotnar niður með tímanum, skordýr geta lagst á hann sem og nagdýr og hann dregur í sig raka. Sérstaklega þegar kassarnir eru geymdir uppi á lofti, í kjallara eða bílskúrum. Þess utan er hætt við að fólk gleymi hvað er í þeim því þeir eru ekki gagnsæir.

Meðal þess sem aldrei á að geyma í pappakössum er:

Fatnaður og rúmföt

Mikilvæg skjöl og pappírar

Ljósmyndir og bækur

Raftæki

Verðmætir og viðkvæmir munir

Matur

Jólaskraut

Vínylplötur

Efni sem tengist áhugamálum og handavinnu

Kemísk efni og hættuleg efni

Vopn

Southern Living bendir fólki á að nota frekar sterka plastkassa til að geyma skjöl, ljósmyndir og annað í. Það þarf þó að ganga úr skugga um að þeir séu þurrir og halda þeim fjarri miklum hita. Vínylplötur er best að geyma í lóðréttri stellingu í þar til gerðum kössum eða í hillu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þriggja barna móðirin sem fannst lifandi eftir að hafa verið saknað í 24 ár útskýrir hvers vegna hún lét sig hverfa

Þriggja barna móðirin sem fannst lifandi eftir að hafa verið saknað í 24 ár útskýrir hvers vegna hún lét sig hverfa
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk og fleiri brjálaðir út af skoðanagrein um barnagirnd sem birtist fyrir 12 árum

Elon Musk og fleiri brjálaðir út af skoðanagrein um barnagirnd sem birtist fyrir 12 árum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sorglegar vendingar í máli 85 ára afa sem var rænt

Sorglegar vendingar í máli 85 ára afa sem var rænt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þriggja barna móðir hvarf fyrir 24 árum – Mál hennar tók óvænta stefnu á dögunum

Þriggja barna móðir hvarf fyrir 24 árum – Mál hennar tók óvænta stefnu á dögunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dagleg banananeysla getur haft áhrif á blóðþrýstinginn

Dagleg banananeysla getur haft áhrif á blóðþrýstinginn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Svaf ekkert í átta daga og lýsir áhrifunum – „Ég heyrði og sá hluti sem voru ekki raunverulegir“

Svaf ekkert í átta daga og lýsir áhrifunum – „Ég heyrði og sá hluti sem voru ekki raunverulegir“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi algenga hegðun karla pirrar meirihluta kvenna

Þessi algenga hegðun karla pirrar meirihluta kvenna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Læknir segir tilefni til að hafa áhyggjur ef þú heyrir hjartsláttinn þinn

Læknir segir tilefni til að hafa áhyggjur ef þú heyrir hjartsláttinn þinn