Ef þú átt tennisbolta, ósköp venjulegan tennisbolta, þá er hægt að nota hann til að bjarga handklæðunum og öðrum þvotti.
Ef þú setur tvo til fjóra hreina tennisbolta í þvottavélina eða þurrkarann, þá hafa þeir þau áhrif á þvottinn að trefjarnar mýkjast og efnið verður loftmeira. CHIP skýrir frá þessu.
Fram kemur að helst eigi að sleppa því að nota mýkingarefni því efnin í því myndi himnu ofan á trefjunum og fjarlægi rakadrægnina.
Sérfræðingar segja að sum efni í ákveðnum mýkingarefnum geti verið ofnæmisvaldandi og í versta falli krabbameinsvaldandi.
Það er hægt að nota tennisbolta á fleira en bara handklæði. Þeir gagnast vel þegar koddar, dúnúlpur og önnur efni með fyllingu eru þvegin. Þeir hjálpa til við að koma í veg fyrir að fyllingin safnist í klumpa.
Þeir bæta einnig loftflæðið, stytta þurrktímann og fækka krumpum á fatnaðinum.
Þú getur dregið úr þvottaefnisnotkuninni um helming með því að nota tennisbolta og afraksturinn verður betri.