fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Ef það eru silfurskottur í húsinu þínu, þá skaltu lesa þetta

Pressan
Laugardaginn 30. ágúst 2025 20:30

Silfurskottur eru hvimleiðar en meinlausar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú hefur kannski lent í því að kveikja ljósið á baðherberginu og skyndilega skjótast lítil, silfurlituð dýr eftir gólfinu og flýta sér í felur. Þetta eru auðvitað silfurskottur.

Sumum bregður við þetta en það er svo sem engin ástæða til þess því silfurskottur gera okkur ekki neitt því þær bíta ekki, stinga ekki og bera ekki með sér sjúkdóma.

Þetta eru í raun mjög friðsöm dýr sem hafa mestan áhuga á að gæða sér á pappír, veggfóðurslími og góðgæti sem lendir á gólfinu.

Í umfjöllun um þessi litlu dýr bendir Onet á að silfurskottur geti þó verið við vandræða fyrir þá sem eiga gamlar bækur, safna mikilvægum skjölum eða frímerkjum eða elska veggskreytingar.

Ef silfurskotturnar fjölga sér mjög mikið, þá geta þær ógnað fínu bókunum, frímerkjunum og veggskreytingunum.

Silfurskottur elska hita og raka og því engin furða að baðherbergið sé í uppáhaldi hjá þeim sem og skápar undir vaskinum og dimm horn.

Ef þú vilt fækka silfurskottunum og jafnvel útrýma þeim, þá er aðalatriðið að halda húsinu hreinu og þurru og vel loftræstu.

Það er því góð hugmynd að lofta vel út eftir baðferðir.

Svo er líka hægt að setja blöndu af sykri og bórsýru í hornin. Duft með lavandel- eða sítrónuilmi fer líka illa í silfurskottur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana