fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Trump ætlaði að henda forhertum glæpamönnum úr landi – Nú beinir hann sjónum sínum annað

Pressan
Fimmtudaginn 28. ágúst 2025 03:15

Donald Trump. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt helsta kosningaloforð Donald Trump í forsetakosningunum á síðasta ári var að taka til hendinni og vísa ólöglegum innflytjendum úr landi. Hann hefur látið verkin tala og innflytjendaeftirlitið hefur gengið hart fram um allt land við að hafa uppi á ólöglegum innflytjendum og flytja þá úr landi.

Trump varð tíðrætt um að landið væri fullt af glæpamönnum og andlega veiku fólki frá öðrum ríkjum, fólk sem hefði ekki landvistarleyfi og full ástæða væri til að vísa úr landi. Yfirvöld hafa þó ekki bara einblínt á þessa hópa heldur hefur fjöldi ósköp venjulegs vinnandi fólks verið vísað úr landi.

Nú ætlar Trump að herða aðgerðirnar enn frekar og verður sjónum yfirvalda nú einnig beint að fólki sem er með gilda vegabréfsáritun til Bandaríkjanna.

Bandarískir fjölmiðlar segja að utanríkisráðuneytið segi að unnið sé að því að hefja yfirferð á upplýsingum um alla útlendinga sem eru með vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Þetta eru um 55 milljónir manna. Stór hluti þeirra eru ferðamenn, fólk sem starfar í Bandaríkjunum og kaupsýslufólk.

Markmiðið er að taka á margvíslegu svindli sem að mati Trump-stjórnarinnar er mjög útbreitt. Margir þeirra, sem eru í þessum hópi, eru með útrunna vegabréfsáritun eða hafa hlotið dóm í Bandaríkjunum.

Nú þegar er byrjað að skoða erlenda námsmenn í landinu. Búið er að afturkalla vegabréfsáritun 6.000 námsmanna vegna þess að hún var útrunnin eða vegna brota á ýmsum reglum.

Yfirvöld segja einnig að í framtíðinni verði í ákveðnum tilfellum stuðst við færslur fólks á samfélagsmiðlum til að koma upp um hugsanlega „and-bandarískar“ skoðanir og „gyðingahatur“ þegar sótt er um ferða- og dvalarleyfi í Bandaríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana