The Independent skýrir frá þessu og segir að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO fylgist nú náið með framvindu mála hjá þessu afbrigði.
Naveed Asif, heilsugæslulæknir í Lundúnum, segir að með smiti af þessu afbrigði fylgi „mjög sársaukafullt“ sjúkdómseinkenni sem er alvarleg hálsbólga, nánast eins og rakvélablöð séu í hálsinum. Finnur fólk fyrir miklum sársauka þegar það kyngir, yfirleitt aftast í hálsinum.
Einu ráðin gegn þessu er að hvílast, drekka nóg og taka verkjatöflur.
Mohamed Imran Lakhi, læknir, sagði í samtali við The Mirror að mjög algengt sé að fólk fái hálsbólgu ef það smitast af þessu afbrigði veirunnar. Einnig séu þreyta, vægur hósti, hiti, beinverkir og stíflað nef meðal algengra einkenna. Sumir fái einnig niðurgang og ógleði sem sé frekar óvenjulegt fyrir kórónuveiruafbrigði.