The Wall Street Journal skýrði nýlega frá því að stjórn Donald Trump væri að „íhuga að flytja mörg þúsund hermenn frá Suður-Kóreu“. Miðillinn vitnaði í ónafngreinda heimildarmenn sem sögðu að þessi umræða hefði átt sér stað og varnarmálaráðuneytið hefði unnið að áætlun um að flytja 4.500 hermenn til annarra herstöðva við Indlandshaf og Kyrrahaf, þar á meðal Gvam.
Í yfirlýsingu frá suðurkóreska varnarmálaráðuneytinu kemur fram að það sé staðráðið í að vinna náið með Bandaríkjamönnum við að halda uppi öflugri viðveru herliðs til að fæla Norður-Kóreu frá árásum.
Bandaríkin og Suður-Kórea sömdu á síðasta ári um skiptingu kostnaðar við varnir Suður-Kóreu og er samningurinn til fimm ára. Donald Trump hefur gefið í skyn að hugsanlega verði rætt um skiptingu kostnaðar, vegna veru bandaríska herliðsins í Suður-Kóreu, í tengslum við viðræður um viðskipti og tolla. Suðurkóreskir embættismenn segja að ræða verði þessi mál óháð hvort öðru.