fbpx
Mánudagur 25.ágúst 2025
Pressan

Héldu að hún hefði orðið raðmorðingja að bráð – Sannleikurinn leyndist í fataskáp

Pressan
Sunnudaginn 24. ágúst 2025 22:00

Natasha Ryan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tæp fimm ár syrgðu foreldrar Natasha Ryan hana og töldu að hún hefði orðið fórnarlamb raðmorðingja. Lögreglan taldi einnig að raðmorðingi hefði orðið henni að bana. En sannleikurinn leyndist í fataskáp.

Natasha hvarf nærri kvikmyndahúsi í Rockhampton í Ástralíu þann 31. ágúst 1998. Hún var 14 ára. Fljótlega var óttast um afdrif hennar því vitni sögðust hafa séð bíl ekið hratt á brott frá kvikmyndahúsinu þetta sama kvöld.

Lögreglan gerði mikla leit að henni en það var eins og jörðin hefði gleypt hana.

Átta mánuðum síðar hvart önnur stúlka, hin 9 ára Keyra Steinhardt, á leið heim úr skóla. Það var einnig eins og jörðin hefði gleypt hana. Mikil leit var gerð að henni og fljótlega komst lögreglan á slóð Leonard John Fraser. Í bíl hans fannst blóð úr Keyra. Hann var því handtekinn og nokkrum vikum síðar benti hann lögreglunni á staðinn þar sem hann hafði losað sig við lík Keyra. Hann hafði numið hana á brott, nauðgað henni og síðan skorið á háls.

Á þessum tíma höfðu margar konur og stúlkur horfið í Rockhampton og því leiddu margir hugann að því hvort raðmorðingi gengi laus. Fraser var lýst sem „óþægilegum og óhugnanlegum manni“ og því var velt upp hvort hann stæði á bak við hvarf stúlknanna og kvennanna.

Húsið sem Natasha fannst í.

Þegar réttað var yfir honum játaði hann að hafa myrt Keyra en hélt því staðfastlega fram að hann vissi ekkert um hin málin, þar á meðal mál Natasha. En þegar hann afplánaði dóm sinn játaði hann fyrir klefafélaga sínum að hafa myrt þrjár stúlkur og konur til viðbótar auk Natasha.

Hann var því dreginn fyrir dóm á nýjan leik. Þegar réttarhöldin voru hafin, í apríl 2003, kom loks í ljós hver örlög Natasha höfðu verið.

Leonard John Fraser

Lögreglunni barst ábending um að hún væri á lífi og gerði húsleit í húsi í Frenchville í norðurhluta Rockhampton. Í fataskáp fundu lögreglumenn Natasha á lífi og var hún við góða heilsu.

Í tæp fimm ár hafði fólk talið að hún hefði orðið raðmorðingja að bráð. En hún hafði falið sig af fúsum og frjálsum vilja með unnusta sínum, Scott Black sem var 22 ára. Í hvert sinn sem einhver kom að húsinu faldi hún sig í fataskápnum svo hún fyndist ekki.

Svona var umhorfs í skápnum.

Hún hafði varla farið út fyrir hússins dyr öll þessi ár og þegar þau fluttu á milli húsa gerðu þau það alltaf að næturlagi.

Eins og gefur að skilja komu tíðindin foreldrum hennar mjög á óvart, þau voru þess fullviss að hún væri látin.

Í viðtölum síðar sagði Natasha að hún hefði nokkrum sinnum stungið af að heima áður en hún lét sig hverfa í öll þessi ár en hefði alltaf skilað sér heim aftur. Hún hafði einnig í hyggju að snúa aftur heim eftir hvarfið 1998 en eftir því sem dagarnir liðu varð lyginn stærri að hennar mati og henni fannst hún ekki geta snúið aftur heim. Þess vegna var hún í felum öll þessi ár.

Natasha Ryan eftir að hún fannst í skápnum.

Scott Black var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa logið í málinu. Dómurinn var síðar mildaður í 12 mánaða fangelsi. Natasha var dæmd til greiðslu sektar fyrir að hafa beint rannsókn lögreglunnar á ranga braut.

Natasha og Scott gengu í hjónaband 2007 og eru enn gift og búa á ónafngreindum stað í Ástralíu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

40.000.000.000.000.000.000 – Þetta er fjöldi svarthola í alheiminum

40.000.000.000.000.000.000 – Þetta er fjöldi svarthola í alheiminum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tálbeituaðgerð 12 ára drengs gegn grunuðum barnaníðingi fór illilega úrskeiðis

Tálbeituaðgerð 12 ára drengs gegn grunuðum barnaníðingi fór illilega úrskeiðis
Pressan
Fyrir 4 dögum

Deila hart um hver seldi fyrstu Bratwurst pylsuna

Deila hart um hver seldi fyrstu Bratwurst pylsuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ríkisrekin ritskoðun“ – Mörg hundruð bækur fjarlægðar úr skólum

„Ríkisrekin ritskoðun“ – Mörg hundruð bækur fjarlægðar úr skólum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Lyktarskyn dótturinnar kom upp um morðingja móður hennar

Lyktarskyn dótturinnar kom upp um morðingja móður hennar
Pressan
Fyrir 5 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun í garðinum tveimur dögum eftir að eiginmaður hennar hvarf

Gerði óhugnanlega uppgötvun í garðinum tveimur dögum eftir að eiginmaður hennar hvarf