fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Alaskabúi fékk ótrúlega gjöf frá Pútín

Pressan
Miðvikudaginn 20. ágúst 2025 07:00

Mark og nýja mótorhjólið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mark Warren, sem býr í Anchorage í Alaska, datt í lukkupottinn síðasta föstudag þegar Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, og Donald Trump, Bandaríkjaforseti, funduðu í Alaska.

The Independent segir að rússneskir fréttamenn hafi fyrir tilviljun hitt Warren á götu úti áður en fundurinn hófst. Þeir stoppuðu til að dást að mótorhjóli Warren en það var framleitt af fyrirtækinu Ural, sem var stofnað 1941 í þáverandi Sovétríkjunum.

Warren sagði fréttamönnunum að hann ætti í erfiðleikum með að verða sér úti um varahluti í hjólið. Þetta barst Pútín til eyrna og hann brást hratt við og lét starfsmann rússneska sendiráðsins útvega nýtt Ural-mótorhjól sem Warren fékk gefins.

Þegar fulltrúi sendiráðsins afhenti Warren mótorhjólið sagði hann að það væri persónuleg gjöf frá Pútín.

Warren var ánægður með þetta og sagði: „Ég er orðlaus. Þetta er frábært. Ég kann vel við gamla mótorhjólið mitt en þetta er augljóslega betra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana