Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, ávarpaði fund sendiherra Arababandalagsins í Istanbúl í dag og þar sagði hann Bandaríkin bera fulla ábyrgð á afleiðingum gjörða sinna, þar með talið rétti Írans til sjálfsvarna.
„Þjóð mín hefur setið undir árásum, árásargirni, og verður að bregðast við í samræmi við rétt okkar til sjálfsvarna.“
Hann biðlar til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að boða til neyðarfundar til að draga ríkisstjórn Bandaríkjanna til ábyrgðar fyrir að hafa brotið sáttmála Sameinuðu þjóðanna, Bandaríkin hafi gengið langt yfir öll mörk.
Scott Lucas er prófessor í bandarískum og alþjóðlegum stjórnmálum við háskólann í Dublin. Hann ræddi um árásirnar í gærkvöldi við Al Jazeera þar sem hann var beðinn um að útskýra hvers vegna Bandaríkin réðust í þessar aðgerðir í gær.
„Því Donald Trump var plataður af Ísrael; sumir gætu sagt að hann hafi verið ginnkeyptur,“ segir Lucas. Hann segir að forsætisráðherra Ísrael, Benjamin Netanyahu, hafi verið niðurlægður þegar Trump tilkynnti í febrúar að hann vildi beita sér fyrir diplómatískum leiðum til að stöðva kjarnorkutilraunir Íran. Hann hafi því ákveðið að koma því skýrt á framfæri við Trump að Ísrael ætlaði sér að beita hernaði.
Trump hafi þá lagst undir feld en ákveðið þann 8. júní að styðja við hernaðaraðgerðir Ísrael sem hófust þann 13. júní. Ísrael hafi þó ekki beint árásum sínum aðeins gegn kjarnorkustöðvum heldur líka gegn borgarlegum innviðum sem og hernaðarlegum skotmörkum. Loks hafi Trump látið undan þrýstingi og ákveðið að senda stóru sprengjurnar í von um að gera út af við kjarnorkutilraunir Íran með einni hnitmiðaðri árás.
Nú hafi Trump tekið mikla áhættu. Hann treysti því að árásirnar í gær hafi náð að rústa kjarnorkurannsóknarstöðinni i Fordow. Það myndi þýða að ekki þurfi að koma til frekari árása Bandaríkjamanna á Íran.
„En ef Fordow varð ekki fyrir skaða og ef aðrar kjarnorkustöðvar geta haldið starfsemi sinni áfram þá held ég að Bandaríkin þurfi að gera aðra atlögu og með því hættir Trump á að snúa sumum banda- og stuðningsmönnum gegn sér.“
Trump er þó sigurviss og segist sannfærður um að árásirnar hafi tortímt skotmörkum sínum.
Araghchi er nú á leið til Rússlands þar sem hann mun ræða við Vladimir Pútín forseta, en Rússland hefur þegar fordæmt árásirnar og fullyrt að þær hafi brotið gegn alþjóðalögum.