fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Pressan

Fór í frí með tengdafjölskyldunni sem vissi ekki hvaða níðingsverk hann framdi daginn áður

Pressan
Föstudaginn 24. maí 2024 04:05

James Harris. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Næstu 19 árin mun hinn 24 ára Zachary Hackman sitja í fangelsi í Oregon í Bandaríkjunum. Hann var nýlega fundinn sekur um að hafa myrt hinn 54 ára James Orlando Harris.

People segir að Hackman hafi slegið Harris og síðan kyrkt hann. Harris var faðir unnustu hans og fór Hackman í frí með henni og fjölskyldu hennar daginn eftir að hann myrti verðandi tengdaföður sinn.

Lík Harris fannst í október 2022 í Portland þegar lögreglumenn brugðust við tilkynningu um „dularfullar aðstæður“.

Hackman var handtekinn síðar í mánuðinum, grunaður um að hafa myrt Harris.

Líkið var í svefnpoka sem hafði verið hent í gróðurþykkni. Krufning leiddi í ljós að Harris hafði verið sleginn í höfuðið með hamri og síðan kyrktur með hundaól að sögn The Oregonian.

Upptökur úr eftirlitsmyndavél sýndu Hackman setja handklæði fyrir eldhúsgluggann heima hjá Harris daginn sem hann myrti hann. Upptakan sýndi einnig að unnusta hans aðstoðaði hann við að bera þunga tunnu út í bílinn hennar.

Daginn eftir morðið fór Hackman í frí með unnustu sinni og fjölskyldu hennar.

Hackman gerði samning við ákæruvaldið og var dæmdur í 19 ára fangelsi eftir að hafa játað morðið.

Þegar unnustan var yfirheyrð sagðist hún ekki hafa vitað að lík var í tunnunni og taldi sig vera að hjálpa Hackman að losna við rusl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?