fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Pressan

Myrti 5 manns vegna farsíma

Pressan
Miðvikudaginn 22. maí 2024 06:30

Djibril og Adja Diol með dótturina Khadija. Mynd:Lögreglan í Denver

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á föstudaginn játaði Kevin Bui fyrir dómi að hafa orðið fimm manns að bana árið 2020 þegar hann kveikti í heimili þeirra. Það gerði hann af því að hann taldi að fólkið hefði stolið farsíma hans.

People segir að Djibril Diol, 29 ára, Adja Diol, 23 ára og 22 mánaða dóttir þeirra hafi látist í eldsvoðanum. Systir Djibril og ung dóttir hennar létust einnig. Þrennt komst lifandi út úr húsinu.

Í tilkynningu frá saksóknara í Denver í Colorado segir að Bui eigi 60 ára fangelsi yfir höfði sér en dómur yfir honum verður kveðinn upp í byrjun júlí.

Hann er einn þriggja manna sem hafa játað að hafa kveikt í húsi í Green Valley Ranch í ágúst 2020 en þar bjuggu fyrrnefndir fimmmenningar.

People segir að Bui hafi skipulagt íkveikjuna og hafi fengið hjálp frá tveimur vinum sínum. Hann taldi að íbúar hússins hefðu stolið farsíma hans í júlí þegar viðskipti með fíkniefni fóru fram. Hann taldi að fólk, sem hafði áður stolið frá honum, ætti heima í húsinu og fór því og kveikti í því.

Bui var handtekinn í janúar 2021 eftir að lögreglunni hafði tekist að staðsetja hann og vitorðsmenn hans á brunavettvanginum.

Vitorðsmennirnir hafa þegar verið dæmdir. Annar var dæmdur í 40 ára fangelsi og hinn í þriggja ára vist á ungmennafangelsi og sjö ár í ríkisfangelsi fyrir unga fanga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?