fbpx
Sunnudagur 16.júní 2024
Pressan

Ísraelar brjálaðir: „Það verða afleiðingar“ – Segja hryðjuverk borga sig

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 22. maí 2024 07:55

Israel Katz er ómyrkur í máli eftir tíðindi morgunsins. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísraelsk yfirvöld eru allt annað en sátt við þá ákvörðun Noregs, Írlands og Spánar að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki. Norsk stjórnvöld tilkynntu þetta á blaðamannafundi í morgun og munu Írland og Spánn fylgja á eftir.

Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, sagði að tveggja ríkja lausn væri sú eina í stöðunni sem uppi er fyrir botni Miðjarðarhafs. Bætti hann við að bæði Palestínumenn og Ísraelar ættu rétt á að lifa í friði hvort í sínu ríki. „Það verður enginn friður í Mið-Austurlöndum án tveggja ríkja lausnar og það verður engin tveggja ríkja lausn án Palestínu.“

Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, tók í svipaðan streng og sagði að margar ástæður lægju að baki ákvörðun Spánverja. Friður, réttlæti og stöðugleiki væru þó grundvallarástæður þess að Spánverjar munu viðurkenna sjálfstætt ríki Palestínu.

Óhætt er að segja að Ísraelar hafi brugðist ókvæða við þessum fregnum og segir Israel Katz, utanríkisráðherra landsins, að þetta sýni að hryðjuverk borgi sig.

„Þessi ákvörðun í dag sendir þessi skilaboð til Palestínumanna og heimsbyggðarinnar: hryðjuverk borga sig,“ sagði hann og vísaði í fjöldamorð Hamas-liða í Ísrael þann 7. október í fyrra. Ísraelsmenn réðust inn á Gaza-svæðið í kjölfarið og hafa tugir þúsunda óbreyttra borgara látið lífið í þeim átökum.

Ísraelsmenn tilkynntu i morgun að sendiherrar ríkisins í Noregi og Írlandi yrðu kallaðir heim vegna ákvörðunar ríkjanna. Gera má ráð fyrir að sendiherra landsins á Spáni verði einnig kallaður heim.

„Ég ætla að senda Írlandi og Noregi skýr skilaboð: Ísrael mun ekki beygja sig fyrir þeim sem grafa undan fullveldi landsins og setja öryggi þess í uppnám. Ísrael mun ekki taka þessu þegjandi og hljóðalaust – það verða alvarlegar afleiðingar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Nú verður fólki refsað fyrir nekt og undarlegan klæðaburð – Sektarupphæðirnar segja sitt um umfang vandans

Nú verður fólki refsað fyrir nekt og undarlegan klæðaburð – Sektarupphæðirnar segja sitt um umfang vandans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögðu hald á rúm tvö tonn af kókaíni eftir skotbardaga á hafi úti

Lögðu hald á rúm tvö tonn af kókaíni eftir skotbardaga á hafi úti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Byssumaður dæmdur í 14 ára fangelsi

Byssumaður dæmdur í 14 ára fangelsi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Flugfélag veitir konum tækifæri til að velja sæti við hlið annarra kvenna

Flugfélag veitir konum tækifæri til að velja sæti við hlið annarra kvenna