fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Bólgnir, bláir og einn í hjólastól – Grunaðir hryðjuverkamenn dregnir fyrir dóm

Pressan
Mánudaginn 25. mars 2024 08:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir menn sem grunaðir eru um þátttöku í hryðjuverkaárásinni í Moskvu á föstudag voru leiddir fyrir dómara í gær. Að minnsta kosti 137 létust þegar vopnaðir menn réðust inn í tónleikahöll í borginni og hófu skothríð.

Útlit mannanna vakti talsverða athygli þegar þeir voru leiddir fyrir dómara . Mennirnir virðast hafa verið beittir miklu ofbeldi af lögreglu og voru allir með áverka í andliti; bólgnir, bláir og með glóðarauga.

Sjá einnig: Það sem við vitum um samtökin alræmdu sem frömdu voðaverkið í Moskvu

Einn mannanna var með stórar umbúðir utan um eyra og þá var einn mannanna í hjólastól. Virtist hann vera meðvitundarlítill þegar honum var rúllað inn í réttarsalinn.

Í frétt BBC segir að maðurinn sem var umbúðir um eyrað hafi misst hluta þess eftir að hann var handtekinn af lögreglu.

Mennirnir sem um ræðir heita Dalerdzhon Mirzoyev, Saidakrami Murodali Rachabalizoda, Shamsidin Fariduni og Muhammadsobir Fayzov. Eru þeir sagðir vera ríkisborgarar Tadsjíkistan.

Talið er að um sex þúsund manns hafi verið í Crocus City Hall, ráðstefnu- og tónleikahöll í útjaðri Moskvu, þegar mennirnir hófu skothríð. Auk þeirra 137 sem létust særðust rúmlega hundrað, sumir alvarlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sýknaður af ákæru um ölvunarakstur – Þjáist af „bruggsjúkdómi“

Sýknaður af ákæru um ölvunarakstur – Þjáist af „bruggsjúkdómi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu