Upphæðin sem um ræðir er talsverð en Hunter sagður hafa svikist undan því að greiða 1,4 milljónir dala undan skatti, eða tæplega 200 milljónir króna á núverandi gengi. Ná brotin yfir fjögurra ára tímabil; 2016, 2017, 2018 og 2019.
Hunter Biden er þekktur glaumgosi og er hann sagður hafa notað fjármunina til að fjármagna lúxuslíf sitt. Er hluti peninganna sagður hafa farið til kaupa á fíkniefnum, vændiskonur, lúxusbíla, föt og gistingu á flottum hótelum. „Allt nema skatta,“ eins og segir í umfjöllun New York Post.
Hann er sagður hafa eytt 27 þúsund Bandaríkjadölum, um 30 milljónum króna, í áskrift að klámsíðu. Þá fóru 10 þúsund dollarar, um ein og hálf milljón króna, í aðild að kynlífsklúbbi en aðildin var bókfærð sem aðild að golfklúbbi að því er fram kemur í frétt New York Post.