Sky News skýrir frá þessu og segir að samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni hafi ofskynjunarefnin fundist í nokkrum súkkulaðistykkjum sem voru seld í bás á markaði í Mansfield.
Lögreglan vinnur nú að rannsókn málsins og hefur sent út aðvörun þar sem fólk er hvatt til að borða ekki súkkulaði keypt á markaðnum.
63 ára kona var handtekin í síðustu viku, grunuð um að hafa sett ofskynjunarefnin í súkkulaðið. Henni var síðan sleppt lausri gegn greiðslu tryggingar.
Fólkið, sem veiktist af súkkulaðiátinu, hefur nú náð sér að fullu.