fbpx
Sunnudagur 05.október 2025
Pressan

Nokkrar aðferðir til að lina hósta

Pressan
Þriðjudaginn 26. desember 2023 13:30

Það er hægt að grípa til fleiri ráða en að taka hóstasaft.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er fátt meira pirrandi en hvimleiður hósti sem virðist bara ekki ætla að hverfa. Það getur verið kitl í hálsinum sem veldur hóstanum eða hann getur verið afleiðing af kvefi. En það skiptir engu hversu lengi þú hefur glímt við hann, hann er óþægilegur og þú vilt bara losna við hann sem fyrst.

En það er rétt að hafa í huga að hósti er ekki alltaf af hinu slæma. Hósti er viðbragð sem verndar öndunarfærin og lungun fyrir ryki, sýklum og slími. Eftir því sem bandarísku lungnasamtökin segja þá er ekkert óeðlileg að fá hósta öðru hvoru.

Hósti getur átt margvísleg upptök. Það getur veirusýking sem veldur honum, asmi eða árstíðabundið ofnæmi. En alvarleg heilsufarsvandamál geta einnig komið við sögu, til dæmis krónísk lungnavandamál, krabbamein eða hjartavandamál. Þetta sagði Michael Hanak, lektor við læknadeild Rush University í Chicago. Womens Health Magazine skýrir frá þessu.

Hann benti á nokkrar aðferðir sem geta hjálpað til við að lina hósta.

Hann sagði að einföld leið til að lina hósta sé að skola hálsinn með saltvatni. Það geti stytt tímanns em hóstinn stendur yfir. Þetta getur verið óþægilegt í upphafi en þetta er áhrifarík leið til að drepa bakteríur og draga úr verkjum. Blanda á hálfri teskeið af salti saman við 2,4 dl af vatni.

Engiferte hefur reynst vel við að slá á hósta og mýkja sáran háls. Engifer vinnur einnig gegn bólgum.

Hanak sagði að það geti gagnast að bæta hunangi út drykki, til dæmis te. Það geti dregið úr verkjum og veitt vörn gegn veirusýkingum.

Það að fara í heitt bað eða sturtu getur einnig virkað gegn hósta auk þess sem það getur linað aðra verki. Hitinn opnar æðarnar og haft góð áhrif á slímhimnuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Vendingar í máli stúlku sem hvarf á dularfullan hátt árið 1970

Vendingar í máli stúlku sem hvarf á dularfullan hátt árið 1970
Pressan
Fyrir 2 dögum

Faðir vaknaði daginn sem ákvarða átti refsingu hans fyrir kynferðisbrot – Þess í stað skaut hann börnin sín

Faðir vaknaði daginn sem ákvarða átti refsingu hans fyrir kynferðisbrot – Þess í stað skaut hann börnin sín
Pressan
Fyrir 3 dögum

Systur fundnar á lífi eftir að hafa verið saknað í 36 ár – Sást seinast til þeirra rétt áður en móðir þeirra var myrt

Systur fundnar á lífi eftir að hafa verið saknað í 36 ár – Sást seinast til þeirra rétt áður en móðir þeirra var myrt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Voru fljót að láta sig hverfa úr Airbnb-íbúð þegar þau komu auga á þetta

Voru fljót að láta sig hverfa úr Airbnb-íbúð þegar þau komu auga á þetta
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lygilegt að hann sé á lífi eftir ótrúlega uppákomu

Lygilegt að hann sé á lífi eftir ótrúlega uppákomu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Faðir byssumannsins þjakaður af sorg – „Mér líður skelfilega“

Faðir byssumannsins þjakaður af sorg – „Mér líður skelfilega“
Pressan
Fyrir 6 dögum

Líkið í frystinum sem varð smánarblettur í réttarsögu Sviss – Hver myrti Christine Zwahlen?

Líkið í frystinum sem varð smánarblettur í réttarsögu Sviss – Hver myrti Christine Zwahlen?
Pressan
Fyrir 6 dögum

Ung móðir grunuð um að reyna að drekkja þremur börnum sínum í almenningssundlaug

Ung móðir grunuð um að reyna að drekkja þremur börnum sínum í almenningssundlaug