VG skýrir frá þessu og segir að saksóknari krefjist þess að konan verði dæmd til vistunar á geðdeild.
Telur ákæruvaldið að hún hafi verið geðveik þegar hún kastaði barninu út um glugga.
Verjandi konunnar sagði í samtali við VG að hún neiti sök.
Það var í maí á þessu ári sem konan kastaði barninu út um glugga. Þetta gerðist í Nesodden sem er skammt frá Osló.
Barnið lifði af en hlaut alvarlega höfuðáverka.