Maðurinn skýrði frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit. Þar sagðist hann hafa farið að leita svara eftir að hann reifst við eiginkonu sína sem lét þau orð falla í rifrildinu að hann væri ekki líffræðilegur faðir dóttur þeirra.
Í kjölfarið ákvað maðurinn að fara í DNA-próf. Hann sagðist ekki hafa gert það aðeins fyrir sjálfan sig, heldur einnig fyrir dóttur sína. „Ef ég var ekki líffræðilegur faðir hennar, þá voru einfaldlega of miklar líkur á að hún myndi komast að því fyrir slysni í gegnum erfðafræðipróf eða hvaða tækni sem verður til eftir 15 ár. Ég vildi að hún myndi komast að þessu á þennan hátt. Ég myndi ekki vilja komast að þessu á þennan hátt,“ skrifaði hann.
Hann fór því og keypti heimapróf sem hann sagði eiginkonu sinni að væri COVID-próf en hún varð að nota slíkt reglulega vegna vinnu sinnar. 40 klukkustundum síðar lá svarið fyrir – stúlkan var dóttir hans. „Hún myndi alltaf vera dóttir mín,en líffræðilega er hún dóttir mín. Ég man ekki eftir að hafa fundi fyrir svona miklum létti, nokkru sinni á ævinni, við að fá niðurstöðu prófs,“ skrifaði hann.
En þar með var deilum hjónanna ekki lokið því maðurinn var enn særður vegna orða eiginkonunnar og hafði áhyggjur af hvort hún hefði verið að segja satt um að hún hefði haldið framhjá honum. „Þeim mun meira sem ég hugsaði um þetta, þeim mun meira fór ég að trúa að hún hefði gengið lengra en bara að reyna að særa mig. Hún ætlaði greinilega að reyna að særa mig djúpt en ég byrjaði að vera mjög viss um að hún hefði sofið hjá einhverjum öðrum á þeim tíma þegar dóttir okkar var getin og annað hvort vissi hún ekki hver væri faðir hennar eða hefði alla tíð talið að ég væri ekki líffræðilegur faðir hennar.“
Hann ákvað því að ljúga að eiginkonu sinni og sagði henni að hann hefði farið í DNA-rannsókn og að niðurstaðan væri að hann væri ekki faðir dóttur þeirra. Hann sagði að hún hefði sýnt augljós merki um „örvæntingu“ og að síðan hefði hún játað að hafa sofið hjá fyrrum vini hans.
Hann sagðist síðan hafa sagt henni sannleikann í kjölfar játningar hennar og hafi hún reiðst mjög yfir að hann hafi logið að henni.