Fyrr í dag var David Fuller, 68 ára, dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Bretlandi, fyrir að níðast á líkum 23 kvenna í líkhúsum sjúkrahúsa. Er þá fjöldi fórnarlamba hans komin upp í 101.
Kemur dómurinn ofan á lífstíðardóm sem hann hlaut í fyrra. Var hann þá dæmdur fyrir að hafa myrt Wendy Knell, 25 ára, og Caroline Pierce, 20 ára, í tveimur aðskildum árásum í Tunbridge Wells í Kent árið 1987.
Níu til hundrað ára
Við réttarhöldin í fyrra játaði hann einnig að hafa níðst kynferðislega á 78 líkum kvenna, á tímabilinu frá 2005 til 2020, á tveimur sjúkrahúsum þar sem hann starfaði sem rafvirki. Er því tala þeirra látnu kvenna sem hann níddist á komin upp í 101. Voru konurnar á aldrinum 9 til 100 ára.
Alls játaði Fuller 16 ný brot, þar af 12 er snúa að kynferðislegri misnotkun á líkum og fjögur brot er snúa að vörslu klámefnis sem breska lögreglan flokkar af alvarlegust gerð.
Í tölvum Fuller fundust 818,051 mynd og 504 myndbönd af honum misnota lík auk gagna sem sýna fram á einbeittan brotavilja hvað varðar að nauðga, misþyrma og myrða konur.
Málið er sagt hið versta sinnar tegundar í breskri réttarsögu.
Mikil gagnrýni á yfirvöld
Breska heilbrigðiskerfið hefur sætt mikilli gagnrýni vegna málsins og eiga margir erfitt með að skilja hvernig Fuller komst upp með brot sín á tveimur sjúkrahúsum í áratugi án þess að grunur vaknaði um ódæðisverk hans.
Sama má segja um morð hans á konunum tveimur en það liðu 34 ár frá morðunum og þar til Fuller var dæmdur.
Fjöldi ættingja var viðstaddur réttarhöldin og sögðu margir þeirra frá því hversu Fuller hefði skaðað þá til lífstíðar.
Dóttir eins fórnarlambsins sagði það eitt gleðja sig að heimurinn vissi af hverslags skrímsli Fuller væri og sagði önnur dóttir að hann hefði stolið frá sér minningum um friðsælt fráfall móður sinnar.
„Ég kyssti mömmu mína kveðjukossinum og hefði það átt að vera hennar síðasta mannlega snerting hennar, full ástar og trausts. Þess í stað svívirti þú hana,” sagði enn ein dóttirin.
Móðir látin sitja 34 tíma í fangelsi
Ein fórnarlamba Fuller var hin 24 ára gamla Azra Kemal, sem lést í bílslysi í júlí 2020.
Þegar að móðir hennar, Nevres Kemal, frétti af ódæði Fuller fór hún með steikarhníf á Colindale lögreglustöðina þar sem hún hafði frétt að Fuller væri haldið. Hún sagði að reiði hennar hefði verið ólýsanleg og hún hefði sem móðir ekkert viljað frekar en að drepa manninn sem níddist á líki dóttur hennar.
Hún segist vera 99,99% viss um að hafa drepið Fuller hafi hún komist að honum. En þegar að Azra gekk inn á lögreglustöðina réðust að henni níu lögreglumenn, sneru niður og afvopnuðu. Höfðu lögreglumennirnir sem tilkynntu henni um glæpinn hringt á undan henni og sagt hana vera á leið á lögreglustöð, hugsanlega vopnaða.
Þeir útskýrðu hins vegar ekki fyrir kollegum sínum af hverju reiði Nevres stafaði og vissu lögreglumennirnir, sem handtóku hana, ekki hvað hafði verið gert dóttur hennar.
„Ég sat þarna handjárnuð, grét og endurtók að látinni dóttur minni hefði verið nauðgað í líkhúsi. Það yrði að refsa manninum sem hefði gert henni þetta.
Hún var aftur á móti ekki trúað og þess í stað handtekinn. Nevres sat í fangaklefa í 34 klukkustundir áður en lögreglu tókst að komast í gegnum skriffinnskuna sem sannaði sögu hennar. Var henni þá loksins sleppt úr haldi.
Munu aðstandendur hinna látnu kvenna í líkhúsum sjúkrahúsanna fá skaðabætur frá breska ríkinu upp á um 10 milljónir punda.