fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Pressan

Bóndi dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir mannrán, nauðgun og morð

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 16. október 2021 12:30

Quake Lewellyn og Sydney Sutherland. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Quake Lewellyn, 29 ára bóndi frá Arkansas í Bandaríkjunum, var nýlega dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að hafa numið Sydney Sutherland, 25 ára hjúkrunarfræðing, á brott, nauðgað henni og myrt.

People skýrir frá þessu. Fram kemur að Lewellyn hafi játað að hafa myrt Sutherland sem fór út að hlaupa í Newport þann 25. ágúst 2020 en sneri ekki aftur heim.

Hann játaði einnig að hafa ekið á hana og að hafa síðan nauðgað henni og að lokum myrt.

Umfangsmikil rannsókn hófst strax á málinu en lík Sutherland fannst nærri heimili Lewellyn. Hann var handtekinn nokkrum dögum síðar.

Lögreglan hefur staðfest að tengsl hafi verið á milli þeirra en ekki hefur komið fram af hverju Lewellyn myrti Sutherland.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Karl konungur með tilfinningaþrungna uppfærslu um krabbameinsbaráttuna

Karl konungur með tilfinningaþrungna uppfærslu um krabbameinsbaráttuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ráðherrann staðinn að lygum í þinginu – Reyndi að fara undan í flæmingi og flúði svo þingsal

Ráðherrann staðinn að lygum í þinginu – Reyndi að fara undan í flæmingi og flúði svo þingsal
Pressan
Fyrir 1 viku

Faðir varar ungmenni við eftir dauða 13 ára dóttur sinnar

Faðir varar ungmenni við eftir dauða 13 ára dóttur sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Telur að Weinstein hafi afplánað sinn dóm vegna kynferðisbrota og segist fyrirgefa honum í hneykslanlegu viðtali

Telur að Weinstein hafi afplánað sinn dóm vegna kynferðisbrota og segist fyrirgefa honum í hneykslanlegu viðtali