fbpx
Miðvikudagur 14.janúar 2026
Pressan

Vendingar í máli manns sem var rekinn vegna færslu um Charlie Kirk

Pressan
Fimmtudaginn 8. janúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Háskóli í Tennessee í Bandaríkjunum mun greiða prófessor við skólann 500 þúsund Bandaríkjadali, rúmar 63 milljónir króna, og láta hann hafa starfið sitt aftur.

Prófessorinn, Darren Michael, var rekinn vegna færslu sem hann birti eftir að íhaldssami áhrifavaldurinn Charlie Kirk var drepinn.

Darren var fastráðinn við Austin Peay State University í Clarksville, en tveimur dögum eftir morðið á Kirk deildi Darren grein frá Newsweek frá árinu 2023. Í henni var haft eftir Kirk að dauðsföll í skotárásum væru ásættanlegur fórnarkostnaður í þágu núverandi byssulöggjafar Bandaríkjanna.

Færsla Michaels vakti harða gagnrýni meðal íhaldsmanna, þar á meðal öldungadeildarþingkonunnar Marsha Blackburn, sem merkti háskólann í Facebook-færslu og spurði: „Hvað segið þið, Austin Peay State University?“

Sama dag sendi háskólarektorinn, Michael Licari, Darren tölvupóst þar sem hann tilkynnti honum að honum hefði verið sagt upp „með tafarlausum hætti“ þar sem færslan hefði skaðað orðspor skólans verulega.

Ekki löngu síðar viðurkenndi skólinn að með þessu hefði verið brotið á réttindum Darrens og er niðurstaðan nú að hann fær starf sitt til baka, 500 þúsund dollara í bætur og þá mun skólinn viðurkenna opinberlega að hafa farið gegn eigin reglum.

Lögmaður Michaels, David L. King, sagði að færsla skjólstæðings síns hefði einfaldlega verið endurbirting á orðum Kirk sjálfs og hélt því fram að háskólinn hefði látið undan pólitískum þrýstingi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hundur réðst á móður – „Fóturinn hékk á bláþræði“

Hundur réðst á móður – „Fóturinn hékk á bláþræði“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Enginn vill kaupa höllina í Hamptons — aftur

Enginn vill kaupa höllina í Hamptons — aftur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún hvarf og fannst síðar myrt í skógi – Lögreglan telur sig hafa fundið morðingjann

Hún hvarf og fannst síðar myrt í skógi – Lögreglan telur sig hafa fundið morðingjann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bandaríska hernum bannað að standa fyrir æfingum sem kallaðar hafa verið dýraníð

Bandaríska hernum bannað að standa fyrir æfingum sem kallaðar hafa verið dýraníð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kalla til hermenn vegna óhugnanlegs hvarfs stúlku

Kalla til hermenn vegna óhugnanlegs hvarfs stúlku
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var konan sem ICE skaut til bana aktívisti? – Fjölskyldan kemur af fjöllum en nágrannar syrgja baráttukonu

Var konan sem ICE skaut til bana aktívisti? – Fjölskyldan kemur af fjöllum en nágrannar syrgja baráttukonu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Rússar hafa fangaskipti við Frakka

Rússar hafa fangaskipti við Frakka