Stuttur ferill Suffolk-morðingjans kostaði fimm mannslíf


Steve Wright fæddist í apríl 1958, sonur herlögreglumanns, Conrads, og aðstoðarkonu dýralæknis, Patriciu. Stöðu Conrads vegna hafði fjölskyldan búið víða, meðal annars á Möltu og í Singapúr.
Patricia sagði skilið við fjölskylduna árið 1964, en þau hjónin skildu þó ekki fyrr en 1977.
Steve lét gott heita hvað skólagöngu áhrærði árið 1974 og fékk starf á kaupskipum. Hann varð síðar bryti á ferjum sem sigldu frá Felixstowe í Suffolk. Hann kvæntist árið 1978 Angelu O’Donovan og eignuðust þau einn son, slitu samvistir 1987 og skildu síðar.
Steve wann hin ýmsu störf; var skipsþjónn, vörubílstjóri, barþjónn og lyftarastjóri.
Steve kvæntist á ný, Díönu Cassel, 1987 og þau skildu ári síðar. Hann og Sarah Whiteley rugluðu saman reytum og voru í sambandi 1989–1993 og eignuðust eina dóttur. Ekkert af þessu varðar það sem eftir lifir frásagnarinnar sem fjallar um morðferil Steve sem stóð ekki lengi – frá 30. október 2006 til 10. desember sama ár – en kostaði fimm konur lífið.
Öll fórnarlömb Steve voru vændiskonur, en hann hafði allar götur frá því að hann var í kaupskipaflotanum vanið komur sínar á vændishús – sem voru oftar en ekki dulbúin sem nuddstofur eða sánu.
Um þetta leyti var Steve í sambandi við konu að nafni Pamela og þegar hún hóf vinnu á næturvöktum var lítið um kynlíf og falaðist Steve þá í enn meira mæli eftir þjónustu vændiskvenna.
Sú fyrsta sem féll fyrir hendi Steve var 19 ára heróín- og kókaínfíkill, Tania Nicol, en hennar var saknað 30. október. Líkamsleifar hennar fundust ekki fyrr en 8. desember í á skammt frá Copdock Mill í Ipswich. Sökum þess hve langt var um liðið frá því hún var myrt var ómögulegt að fullyrða að henni hefði verið nauðgað og dánarorsök á huldu.
Sex dögum áður en líkamsleifar Taniu fundust hafði lík vinkonu hennar, Gemmu Adams, fundist í vatni við Belstead Brook, skammt frá Hintlesham.
Fundust nú lík, hvert á fætur öðru; 10. desember hnaut gangandi vegfarandi nánast um lík 25. ára konu, Anneli Alderton, í skóglendi skammt frá Nacton. Hún hafði verið kyrkt og þrjá mánuði gengin.
Tveimur dögum síðar fundust tvö lík til viðbótar. Kennsl voru borin á annað þeirra og var þar um að ræða 24 ára konu, Paulu Clennell, sem hafði horfið sama dag og líkið af Anneli fannst.
Hinn 15. desember gat lögregla staðfest að hitt líkið var af Annette Nicholls, 29 ára konu sem hafði horfið tíu dögum áður. Líkin af þeim tveimur fundust í Nacton, ekki langt frá þeim stað sem Steve hafði hent líkinu af Anneli.
Lögreglan í Suffolk sá líkindi með morðunum og leitaði eftir aðstoð lögreglunnar í London. Yfir 650 lögreglumenn komu að rannsókn og leit að morðingjanum í aðgerð sem fékk nafnið Sumac.
Hvað kom lögreglunni á sporið er ekki fjölyrt um en 19. desember var Steve Wright handtekinn og að lokinni yfirheyrslu var hann ákærður fyrir fimm morð.
Réttarhöld yfir Steve hófust í Ipswich 16. janúar, 2008, og við þau kom fram að líkum Anneli og Annette hafði verið stillt upp sem krossfest væru og lífsýni úr Steve fannst á þremur líkanna.
Verjandi Steve fór ekki í launkofa með að Steve hefði notfært sér þjónustu vændiskvenna; hann hefði haft samfarir við allar konurnar nema eina – Taniu Nicol.
Steve hafði vissulega tekið Taniu upp í bifreið sína en síðan hætt við og ekið henni í rauða hverfið í Ipswich.
Eftir átta klukkustunda rökræður, 21. febrúar 2008, komst kviðdómur að einróma niðurstöðu um sekt Steve Wright hvað varðaði öll morðin fimm. Daginn eftir fékk hann lífstíðardóm.