fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Eineltismálið í Kópavogi – Faðir eins úr hópnum ætlar að láta son sinn biðja stúlkuna afsökunar

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 4. mars 2026 11:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Unnið er ötullega að því að binda endi á einelti og ofsóknir sem 11 ára stúlka í Kópavogi hefur mátt þola undanfarið ár. Faðir eins geranda í hópnum sem hefur ofsótt stúlkuna hefur stigið inn í málið og ætlar að láta son sinn biðja stúlkuna afsökunar.

Frétt DV um málið síðasta sunnudag vakti mikla athygli og sterk viðbrögð:

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Þar var því lýst hvernig áreitni nokkuð stórs hóps ungmenna á aldrinum 11 til 16 ára gegn stúlkunni hefur stigmagnast og líklega náð hámarki fimmtudaginn 19. febrúar, þegar yfir 10 manna hópur barna og unglinga veittist að henni. Var hún flutt á slysadeild eftir árásina þar sem óttast var að hún væri nefbrotin, svo reyndist ekki vera en hún var með sjáanlega áverka.

Myndband frá aðdraganda og upphafi árásarinnar hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Í kjölfar þess birtu þessir óvinir stúlkunnar myndband á TikTok þar sem börn og ungmenni voru hvött til að sitja fyrir henni og skora á hana í það sem þau kalla „one on one“, þ.e.a.s. slagsmál.

Foreldrar stúlkunnar eru frá Litáen og hafa reynt að koma dóttur sinni til varnar og finna lausnir gegn ofbeldinu en þau tala ekki íslensku og hefur það meðal annars hamlað þeim. Móðir bekkjarsystur stúlkunnar, Elsa Kristinsdóttir, hefur gengið fram fyrir skjöldu til að vekja athygli á málinu og berjast fyrir því að gripið sé til aðgerða til að binda endi á ofbeldið. Veitti hún DV viðtal um málið síðasta sunnudag.

Elsa Kristinsdóttir hefur barist fyrir málstað stúlkunnar. – Aðsend mynd.

Hún hefur meðal annars birt áðurnefnt myndband af ofsóknum gegn stúlkunni í ýmsum íbúahópum á Facebook og beðið foreldra um að kanna hvort þeir beri kennsl á börn sín í hópnum. Þetta hefur borið árangur. Hún sagði við DV í gærkvöld:

„Það var að hafa samband við mig maður sem á dreng sem tók þátt í þessu, sonur hans er í Seljaskóla og er í 8. bekk. Hann gat borið kennsl á 4-5 úr myndbandinu og er í þessum töluðu orðum að hafa samband við foreldra þeirra. Hann ætlar einnig að fá að hitta stelpuna sem varð fyrir þessu ásamt foreldrum hennar og láta son sinn biðjast afsökunar, ásamt því að láta hann lofa stelpunni að ef það er eitthvað þá muni hann og hans vinir aðstoða hana.“

Elsa greindi DV einnig frá því að kona frá Póllandi, sem talar reiprennandi litáesku og hefur aðstoðað fólk frá Litáen, hafi boðist til að veita foreldrum stúlkunnar túlkaaðstoð.

Í augnablikinu lítur út fyrir að skriður sé að koma á lausn þessa máls en margir er að vinna í því að bera kennsl á börn sem hafa tekið þátt í ofsóknunum, ekki til að refsa og smána, heldur til að foreldrar viðkomandi barna geti gripið inn í.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara
Fréttir
Í gær

Ekkert verður af samruna Arion og Kviku – Þetta er ástæðan

Ekkert verður af samruna Arion og Kviku – Þetta er ástæðan
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Kópaskeri þegar tveimur aðkomumönnum lenti saman – Báðir ákærðir og sakfelldir

Sauð upp úr á Kópaskeri þegar tveimur aðkomumönnum lenti saman – Báðir ákærðir og sakfelldir
Fréttir
Í gær

Varaborgarfulltrúi varð fyrir opinberun í gær – „Það er enginn að hlusta“

Varaborgarfulltrúi varð fyrir opinberun í gær – „Það er enginn að hlusta“
Fréttir
Í gær

Vægur dómur fallinn yfir Helga Bjarti vegna kynferðisbrots gegn dreng í Hafnarfirði

Vægur dómur fallinn yfir Helga Bjarti vegna kynferðisbrots gegn dreng í Hafnarfirði