fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Fréttir

Lindex opnar í stað Next í Kringlunni

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 26. mars 2026 12:10

Teikning af Lindex í Kringlunni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

S4S ehf. hefur undirritað leigusamning við Kringluna um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Verslunin mun opna í maí og verður staðsett í 955 fermetra rými við hlið H&M þar sem Next hefur verið til húsa undanfarin ár. Verður þetta stærsta verslun sem Lindex hefur opnað á Íslandi.

Í tilkynningu kemur fram að með nýju og stærra rými skapast tækifæri til að bjóða enn fjölbreyttara vöruúrval og bætta verslunarupplifun í samræmi við nýjustu verslunarstaðla Lindex.

„Það er okkur mikil ánægja að vera komin með verslunarrými í Kringlunni,” segir Tinna Sigrún Pétursdóttir, markaðsstjóri S4S.  „Netverslunin og Lindex-klúbburinn hafa farið afar vel af stað og við finnum að það er mikil eftirvænting hjá viðskiptavinum til að geta heimsótt nýjar og glæsilegar Lindex verslanir“.

Tinna Sigrún Pétursdóttir

„Við hlökkum mikið til opnunar nýrrar Lindex verslunar í Kringlunni á næstu misserum. Lindex hefur um langt skeið skipað mikilvægan sess í hugum viðskiptavina Kringlunnar og notið þar mikilla vinsælda. Það er okkur því sérstaklega ánægjulegt að Lindex verði áfram hluti af Kringlunni og styrki enn það fjölbreytta úrval verslana sem við bjóðum viðskiptavinum okkar,“ segir Unnur María Pálmadóttir, markaðsstjóri Kringlunnar.

Unnur María Pálmadóttir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Morgunblaðið stendur fast á sínu: „Heimildarmennirnir eru trúverðugir“

Morgunblaðið stendur fast á sínu: „Heimildarmennirnir eru trúverðugir“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Veðurspáin virðist ætla að ganga eftir: „Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima“

Veðurspáin virðist ætla að ganga eftir: „Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

„Ég fékk ákaflega skemmtilegt símtal rétt í þessu og brosi allan hringinn“

„Ég fékk ákaflega skemmtilegt símtal rétt í þessu og brosi allan hringinn“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Biðja fólk um að halda sig heima á meðan veðrið gengur yfir á morgun

Biðja fólk um að halda sig heima á meðan veðrið gengur yfir á morgun
Fréttir
Í gær

Brak úr Villi Birni líklega komið í ljós – Feðgum bjargað eftir að báturinn hvolfdi

Brak úr Villi Birni líklega komið í ljós – Feðgum bjargað eftir að báturinn hvolfdi
Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslendingahóteli á Tenerife þegar sprenging heyrðist og menn með lambhúshettur birtust – „Fólk var hágrátandi“

Uppnám á Íslendingahóteli á Tenerife þegar sprenging heyrðist og menn með lambhúshettur birtust – „Fólk var hágrátandi“