fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Fréttir

Karlmaður á áttræðisaldri sviptur fjárræði – Ítrekað orðið svikahröppum að bráð og millifært milljónir

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 26. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður á áttræðisaldri, sem greindur er með Alsheimer sjúkdóminn og af þeim sökum ófær um að annast fjármál sín, hefur verið sviptur fjárræði til fimm ára að ósk barna hans. Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness í lok febrúar.

Í úrskurði héraðsdóms kom fram að maðurinn lá á spítala vegna veikinda þegar tvö börn hans lögðu beiðnina fram.

„Hann hafi undanfarin ár tekið slæmar ákvarðanir í fjármálum sínum og hafi frá því fyrir jólin 2025 verið ákveðinn í því að kaupa sér dýra bifreið, þrátt fyrir að geta ekki ekið lengur. Hann sýni börnum sínum mikla tortryggni, en treysti ókunnugum þegar kemur að fjármálum. Hann hafi ítrekað orðið svikahröppum að bráð og séu mál til rannsóknar lögreglu, þar sem varnaraðili hafi stöðu brotaþola vegna fjársvika og misneytingar.“

Sökum þessa töldu börn mannsins brýnt að svipta hann fjárræði tímabundið til fimm ára til að varna tjóni og tryggja framtíð föður síns.

Tvö læknisvottorð voru lögð fyrir héraðsdóm, þar sem fram kom að í sjúkrahúslegu mannsins hafi verið áberandi einkenni um vitræna skerðingu með skertu innsæi og skertri dómgreind. Þá segir að fram komi í sögu aðstandenda að varnaraðili hafi verið útsettur fyrir fjársvikum og tapað töluverðum fjárhæðum. Í minnisprófi hafi maðurinn sýnt afturför sem sýni fram á töluverða heilabilun að mati læknisins. Sé það því niðurstaða læknisins að sökum andlegs ástands sé varnaraðili algerlega ófær um að sjá um persónuleg og fjárhagsleg málefni sín og þarfnist allrar aðstoðar þar að lútandi.

Millifærði 12 milljónir fyrir fimm árum – Ítrekuð svik í kjölfarið

Maðurinn gaf skýrslu fyrir dómi þar sem hann mótmælti því að vera sviptur fjárræði. Sagðist hann hafa verið lagður inn á spítala eftir að hafa dottið um koll heima hjá sér og legið ósjálfbjarga í sólarhring.

Sagði maðurinn að nafngreindur starfsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi haft samband við hann og óskað eftir því að hann millifærði þangað fé, sem hann hafi gert, eða alls um 100.000 bandaríkjadali (rúmar 12 milljónir króna).  Sagði hann þetta hafa átt sér stað fyrir um fimm árum síðan. Sagðist hann hafa sætt fleiri slíkum svikum eftir þann tíma og sé nú svo komið að íslenskar lánastofnanir hafi meinað honum að millifæra fé á erlenda aðila. Hann kvaðst þó áfram notast við póstþjónustu DHL. Maðurinn sagði einnig að Arion banki hafi stolið af sér fjármunum með því að falsa lánaskjöl.

Vildi vera sinn eigin herra

Maðurinn sagðist hafa afþakkað fjármálalega aðstoð sem börn hans buðu fram, þar sem hann vildi vera sinn eigin herra. Hann annist sjálfur greiðslu reikninga og noti til þess tölvu og sé með rafræn skilríki. Maðurinn sagðist nýlega hafa keypt tíu ára gamla Toyota-Rav bifreið og greitt fyrir hana um 1.500.000 krónur. Sýndi hann fram á að hann er með gild ökuréttindi.

Í niðurstöðu sinni taldi dómari ljóst að brýn nauðsyn væri til að svipta manninn fjárræði til að gæta fjárhagslegra hagsmuna hans. Þótti dómara ekki efni til að hafa sviptingartímann styttri en krafist var og maðurinn því sviptur fjárræði tímabundið til fimm ára frá 26. febrúar síðastliðnum.

Maðurinn kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar og krafðist þess að hinum kærða úrskurði yrði hrundið eða fjárræðissviptingartíminn styttur. Landsréttur hafnaði kröfunum og staðfesti úrskurð héraðsdóms um fjárræðissviptingu til fimm ára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Morgunblaðið stendur fast á sínu: „Heimildarmennirnir eru trúverðugir“

Morgunblaðið stendur fast á sínu: „Heimildarmennirnir eru trúverðugir“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Veðurspáin virðist ætla að ganga eftir: „Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima“

Veðurspáin virðist ætla að ganga eftir: „Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

„Ég fékk ákaflega skemmtilegt símtal rétt í þessu og brosi allan hringinn“

„Ég fékk ákaflega skemmtilegt símtal rétt í þessu og brosi allan hringinn“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Biðja fólk um að halda sig heima á meðan veðrið gengur yfir á morgun

Biðja fólk um að halda sig heima á meðan veðrið gengur yfir á morgun
Fréttir
Í gær

Brak úr Villi Birni líklega komið í ljós – Feðgum bjargað eftir að báturinn hvolfdi

Brak úr Villi Birni líklega komið í ljós – Feðgum bjargað eftir að báturinn hvolfdi
Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslendingahóteli á Tenerife þegar sprenging heyrðist og menn með lambhúshettur birtust – „Fólk var hágrátandi“

Uppnám á Íslendingahóteli á Tenerife þegar sprenging heyrðist og menn með lambhúshettur birtust – „Fólk var hágrátandi“