fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Fréttir

Falsfrétt Morgunblaðsins: Þröngur hópur lögreglumanna hefur aðgang að gögnum Höfðatorgsmálsins

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 26. mars 2026 18:47

Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekkert hefur komið fram í rannsókn lögreglu um að sakborningar í hinu svokallaða Höfðatorgsmáli séu tengdir Hamas eða öðrum hryðjuverkasamtökum. Fámennur hópur lögreglumanna hefur aðgang að gögnum málsins og bakgrunnur er reglulega kannaður.

Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir þetta í samtali við RÚV.

Í Morgunblaðinu var fullyrt að Hamas liðar hefðu verið að verki í bílakjallara Höfðatorgs þar sem alvarleg líkamsárás átti sér stað. Skömmu seinna greindi lögreglan frá því að það væri ekki satt.

Sjá einnig:

Hinir handteknu á Höfðatorgi hafi engin tengsl við Hamas

Eins og segir í frétt RÚV eru tveir menn í haldi, annar frá Palestínu en hinn frá Svíþjóð með sómalskan bakgrunn. Átökin snerust um nokkur hundruð þúsunda skuld í undirheimunum. Var Land Rover jeppa ekið á einn þeirra sem ætlaði að innheimta skuldina. Var hann síðan stunginn.

Málið er rannsakað sem alvarlega líkamsárás eða jafn vel tilraun til manndráps. Ellefu aðrir eru grunaðir í málinu. Einn þolandi í málinu, maður frá Alsír, á yfir höfði sér brottvísun frá landinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hálkuvarnir dugðu ekki til að koma í veg fyrir banaslys þar sem lítið barn lést

Hálkuvarnir dugðu ekki til að koma í veg fyrir banaslys þar sem lítið barn lést
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Vilhjálmur sár og svekktur – „Við vorum svikin“

Vilhjálmur sár og svekktur – „Við vorum svikin“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ólafur F. tekur skýra afstöðu fyrir borgarstjórnarkosningar – Segir einn flokk skera sig úr

Ólafur F. tekur skýra afstöðu fyrir borgarstjórnarkosningar – Segir einn flokk skera sig úr
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Daði fær „uppsagnarbréf“: „Enginn fær annan séns. Annað tækifæri er ekki í boði“

Daði fær „uppsagnarbréf“: „Enginn fær annan séns. Annað tækifæri er ekki í boði“