fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Fréttir

Ágreiningur á milli Trumps og Netanjahú – „Hvers vegna í fjáranum ættum við að gera það?“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. mars 2026 12:30

Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ágreiningur virðist vera á milli Donalds Trumps, forseta Bandaríkjanna, og Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, um hvernig bregðast eigi við átökunum við Íran og hvort stefna eigi að stjórnarskiptum í landinu.

Fréttamiðillinn Axios greinir frá því að Trump hafi á dögunum hafnað hugmynd Netanjahú um að almenningur Íran yrði hvattur til að fara út á götur og mótmæla stjórnvöldum af hörku.

Í símtali milli leiðtoganna á Trump að hafa sagt: „Hvers vegna í fjáranum ættum við að segja fólki að fara út á göturnar þegar það verður einfaldlega skotið?“

Ágreiningurinn kom upp skömmu eftir að háttsettur íransk­ur öryggisleiðtogi féll í loftárás Ísraels. Netanjahú mun hafa talið að íranska stjórnkerfið væri nær lamað og kærkomið tækifæri væri fyrir uppreisn almennra borgara.

Trump er hins vegar sagður hafa óttast að slík hvatning gæti leitt til fjöldamorða, minnugur atburðanna sem áttu sér stað í janúar þar sem þúsundir létust.

Bandaríkin sendu Írönum í gær 15 liða friðaráætlun og herma heimildir að yfirvöldum í Ísrael hafi þótt áætlunin ekki ganga nógu langt til að veikja hernaðargetu Írans. Trump hefur á hinn bóginn lagt áherslu á skjóta lausn á átökunum.

Í ræðu til flokksfélaga sinna sagði hann að Bandaríkin og Ísrael hefðu þegar „skorið burt krabbameinið“ í kjarnorkuáætlun Írans. „Við höfum skorið það burt. Nú ætlum við að klára verkið,“ sagði forsetinn og bætti við að markmiðið væri að stríðið yrði skammvinnt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Morgunblaðið stendur fast á sínu: „Heimildarmennirnir eru trúverðugir“

Morgunblaðið stendur fast á sínu: „Heimildarmennirnir eru trúverðugir“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Veðurspáin virðist ætla að ganga eftir: „Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima“

Veðurspáin virðist ætla að ganga eftir: „Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

„Ég fékk ákaflega skemmtilegt símtal rétt í þessu og brosi allan hringinn“

„Ég fékk ákaflega skemmtilegt símtal rétt í þessu og brosi allan hringinn“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Biðja fólk um að halda sig heima á meðan veðrið gengur yfir á morgun

Biðja fólk um að halda sig heima á meðan veðrið gengur yfir á morgun
Fréttir
Í gær

Brak úr Villi Birni líklega komið í ljós – Feðgum bjargað eftir að báturinn hvolfdi

Brak úr Villi Birni líklega komið í ljós – Feðgum bjargað eftir að báturinn hvolfdi
Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslendingahóteli á Tenerife þegar sprenging heyrðist og menn með lambhúshettur birtust – „Fólk var hágrátandi“

Uppnám á Íslendingahóteli á Tenerife þegar sprenging heyrðist og menn með lambhúshettur birtust – „Fólk var hágrátandi“