fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Fréttir

Margrét bendir á einfalda aðgerð til að létta byrðar íslenskra heimila

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. mars 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef markmið yfirvalda hér á landi er að ná tökum á verðbólgu, styrkja kaupmátt og stuðla að stöðugleika í efnahagslífinu þá er tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli skynsamleg aðgerð, bæði fyrir heimili og atvinnulíf.

Þetta segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Margrét segir að nýleg stýrivaxtahækkun Seðlabankans undirstriki að verðbólguvandinn sé enn viðvarandi. Róður heimili og fyrirtækja þyngist og atvinnuleysi hafi aukist.

„Við erum komin í marglaga vanda sem ljóst er að ekki verður unninn bugur á öðruvísi en með samstilltu átaki stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og annarra hagsmunaaðila með það að markmiði að ná niður vöxtum og verðbólgu með markvissum aðgerðum,“ segir hún.

Aðgerðir í Svíþjóð

Margrét bendir á að á hinum norrænu löndunum megi sjá að stjórnvöld eru að ráðast í aðgerðir til að bregðast við viðvarandi efnahagslægð, meðal annars með tímabundinni lækkun á virðisaukaskatti (VSK) á matvæli.

„Þannig hafa sænsk stjórnvöld tekið ákvörðun um að lækka VSK á matvæli úr 12% í 6% frá apríl 2026 til loka árs 2027, ásamt því að lækka eldsneytisgjöld. Með því er verið að grípa beint inn í kostnaðargrunn heimila og fyrirtækja, með það að markmiði að draga úr verðbólgu og styðja við efnahagslegan stöðugleika.“

Þá bendir hún á að í Danmörku hafi einnig verið rætt um svipaðar leiðir, það er að nýta skattkerfið til að bregðast við hækkandi framfærslukostnaði. Segir hún að þar eigi nú 30% landsmanna rétt á árlegri matarávísun sem hugsuð er sem mótframlag ríkisins vegna hækkandi vöruverðs.

„Þar virðist hafa myndast þverpólitísk samstaða um að gera breytingar á VSK-kerfi á matvæli, en rætt er um hvort lækka skuli VSK á alla matvöru eða fella VSK alveg niður á grænmeti og ávöxtum. Þá hafa sambærilegar hugmyndir verið til umræðu í Noregi, þ.e. að lækka VSK á matvæli sem lið í því að skapa efnahagslegan stöðugleika.“

Myndi létta róðurinn

Margrét segir að aukna verðbólgu megi að nokkru leyti rekja til hækkunar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa.

„Það er því í hendi og á ábyrgð stjórnvalda að hafa áhrif til lækkunar á verðbólgu og vöxtum og hér er ein leið fyrir stjórnvöld til að leggja sitt af mörkum í þeirri vegferð. Þessi aðferð mun vissulega hafa áhrif á ríkissjóð og kalla á aukið aðhald útgjalda á móti. Verkefnið sem við stöndum frammi fyrir er krefjandi, ástandið kallar á aðgerðir og þær verða því miður ekki allar sársaukalausar. En þessi leið er til þess fallin að hafa bein áhrif á fjárhag heimila og létta róðurinn.“

Hún rifjar upp að á Alþingi liggi nú fyrir þingsályktunartillaga um endurskoðun á álögum á matvæli, þar á meðal tímabundna lækkun VSK. Því sé ljóst að slíkar leiðir eru komnar á radar íslenskra stjórnmálamanna.

„Tímabundin lækkun VSK á matvæli getur bæði létt undir með heimilum og haft áhrif til lækkunar verðbólgu. Slík aðgerð þyrfti þó alltaf að vera skýrt afmörkuð í tíma og unnin
í samráði við atvinnulífið, þannig að tryggt sé að ávinningurinn skili sér til neytenda
og inn í hagkerfið í heild. Auk þess að bæta hag heimila getur lækkun VSK á matvæli einnig stuðlað að auknum stöðugleika á vinnumarkaði.“

Grein sína endar hún á þessum orðum:

„Ef markmiðið er að ná tökum á verðbólgu, styrkja kaupmátt og stuðla að stöðugleika í efnahagslífinu, þá er tímabundin lækkun VSK á matvæli skynsamleg aðgerð, bæði fyrir heimili og atvinnulíf.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump hótar algjörri tortímingu Írans – „Þið munuð komast að því hvað gerist“

Trump hótar algjörri tortímingu Írans – „Þið munuð komast að því hvað gerist“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Ég endurtek og spyr, „ertu að segja mér að þú sért sakaður um tilraun til nauðgunar?“ – „Já“ segir hann“

„Ég endurtek og spyr, „ertu að segja mér að þú sért sakaður um tilraun til nauðgunar?“ – „Já“ segir hann“