fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Fréttir

Pylsa og kók kostar nú 1.330 krónur: „Launakostnaðurinn er farinn úr böndunum“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. mars 2026 07:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baldur Ingi Halldórsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Bæjarins beztu, segir að launakostnaðurinn í þjóðfélaginu sé farinn úr böndunum.

Þetta segir hann við Morgunblaðið í dag en þar kemur fram að þjóðarréttur Íslendingar, ein með öllu og kók, sé kominn í 1.330 krónur. Pylsan kostar orðið 880 krónur og kókið 450 krónur.

Baldur bendir þó á að Bæjarinz bestu bjóði upp á góð tilboð sem lækka verðið umtalsvert, til dæmis kostar fjölskyldutilboð, það er sex pylsur og fjórir drykkir, 3.500 krónur.

Baldur segir við Morgunblaðið að hagnaður nái aldrei yfir 10% og ástæðan fyrir verðhækkunum síðustu misseri sé til að eiga fyrir kostnaði. Laun, hráefniskostnaður og opinber gjöld hafi hækkað.

„Launakostnaður er 50% hjá okkur svo það má ekkert bregða út af. Launakostnaðurinn er farinn úr böndunum í samfélaginu,” segir hann.

Nánar er rætt við Baldur í Morgunblaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Grasrót Miðflokksins logar og segir Miðflokksmenn sniðgengna í þágu „svikasjalla“ – „Stór mistök“

Grasrót Miðflokksins logar og segir Miðflokksmenn sniðgengna í þágu „svikasjalla“ – „Stór mistök“
Fréttir
Í gær

Gróflega misboðið yfir brandara og söngatriði hjá Gísla Marteini á föstudaginn – „Þetta er alls ekki fyndið. Í alvöru“

Gróflega misboðið yfir brandara og söngatriði hjá Gísla Marteini á föstudaginn – „Þetta er alls ekki fyndið. Í alvöru“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rifist um nýjan einkarekinn skóla í Kópavogi – „Bæjarstjóri gekk til slíkra viðræðna án nokkurrar vitneskju eða heimildar bæjarráðs“

Rifist um nýjan einkarekinn skóla í Kópavogi – „Bæjarstjóri gekk til slíkra viðræðna án nokkurrar vitneskju eða heimildar bæjarráðs“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vaknaði við vondan draum í Airbnb-íbúð í Reykjavík og gagnrýnir viðbrögð eigandans

Vaknaði við vondan draum í Airbnb-íbúð í Reykjavík og gagnrýnir viðbrögð eigandans