

Trump gaf írönskum stjórnvöldum um helgina 48 klukkustunda frest til að tryggja að skip gætu farið um sundið og að óbreyttu rennur sá frestur út í kvöld.
Talið er að um fimmtungur allrar heimsframleiðslu á hráolíu fari um Hormússund. Hefur Trump varað varað við því að ráðist verði á raforkuver Írans ef ekki verður orðið við kröfunum.
Stjórnvöld í Íran hafa ekki gefið eftir og raunar gefið til kynna að þau gætu lokað sundinu alfarið og beint árásum sínum að kjarnorkumannvirkjum í Ísrael. Þá segja írönsk yfirvöld að ráðist verði á orkumannvirki við Persaflóa ef Bandaríkin og Ísrael ráðast á raforkuver Írans.
Daily Mail vitnar í viðtal News of Israel við Donald Trump um stöðu mála en í viðtalinu var hann spurður að því hvort hann teldi að Íran myndi láta undan kröfum hans.
„Þið munuð komast að því hvað gerist. Þið munuð komast að því fljótlega. Þetta verður mjög gott. Algjör tortíming Írans. Þetta mun ganga mjög vel.“
Hann bætti við að írönsk stjórnvöld hefðu verið „óþæg” í 47 ár en nú væri komið að skuldadögum. „Nú eru þau að fá það sem þau eiga skilið.“
Um helgina var greint frá því að Trump íhugi að senda bandarískt herlið til Írans til að ná yfirráðum yfir Kharg-eyju. Heimildarmaður í Pentagon sagði í samtali við ísraelska fjölmiðla í gærkvöldi að sú aðgerð yrði mjög umfangsmikil ef af henni verður og gæti tekið margar vikur.