

Morgunblaðið greinir frá þessu í dag.
Landspítalinn er stærsti vinnustaður landsins með yfir sex þúsund starfsmenn, en í frétt blaðsins er áætlað að virði sex þúsund páskaeggja í smásölu í stærð 4 sé um 14,5 milljónir króna.
Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, lýsti í febrúar síðastliðnum miklum vonbrigðum með fjárveitingar ríkisstjórnarinnar til spítalans fyrir árið 2026.
„Verður að segjast að niðurstaðan felur í sér meiri vonbrigði en áður í minni forstjóratíð,“ sagði hann í Spítalapúlsinum, fréttabréfi Landspítalans, sem Morgunblaðið fjallaði um fyrir skemmstu.