fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Fréttir

Óveður í aðsigi: Vegir um allt land á óvissustigi

Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. mars 2026 07:50

Vegfarendur eru hvattir til að huga að færð á vegum áður en þeir leggja af stað. Mynd/Landsbjörg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gular veðurviðvaranir eru í gildi um mestallt land í dag og eru það einungis höfuðborgarsvæðið og Breiðafjörður sem sleppa að þessu sinni. Varasamt ferðaveður verður víða um land og er viðbúið að vegir geti lokast með skömmum fyrirvara.

Fyrstu viðvaranirnar taka gildi upp úr hádegi á Suðurlandi, Suðausturlandi og Miðhálendinu.

Gera má ráð fyrir 15 til 25 metrum á sekúndu og gætu hviður farið yfir 35 metra á sekúndu. Hvassast verður undir Eyjafjöllum, í Öræfum og Mýrdal. Þá má búast við snjókomu eða slyddu og skafrenningi með slæmu skyggni á þessum slóðum. Ekkert ferðaveður verður.

Á Suðurlandi rennur gula viðvörunin úr gildi klukkan 17 en á Suðausturlandi klukkan 22 í kvöld.

Um miðjan dag tekur gul viðvörun gildi á Faxaflóa og má búast við 13 til 20 metrum á sekúndu með snjókomu, skafrenningi og slæmu skyggni.

Um kvöldmatarleytið taka svo gular viðvaranir gildi á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Austfjörðum og má búast við snjókomu og skafrenningi þar með slæmu skyggni. Miklar líkur eru á samgöngutruflunum fyrir austan.

Síðasta viðvörunin tekur svo gildi á Vestfjörðum klukkan 19 í kvöld og þar, líkt og annars staðar, má gera ráð fyrir snjókomu, skafrenningi og slæmu skyggni.

Á vef Vegagerðarinnar er tekið fram að fjölmargir vegir verði á óvissustigi í dag og gætu þeir lokast með skömmum fyrirvara. Þetta á til dæmis við um Reykjanesbraut, Hellisheiði og Þrengsli milli klukkan 11 og 17. Vegurinn um Kjalarnes verður á óvissustigi frá klukkan 11 til 23:59 í kvöld.

Sömu sögu er að segja um vegina um Holtavörðuheiði, Hafnarfjall, Fróðárheiði, Bröttubrekku, Öxnadalsheiði og fleiri. Eru ferðalangar hvattir til að kynna sér færð á vegum á vef Vegagerðarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ari Leifsson nálgast Val
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svara fyrir stóra ísmálið – „Smjör er annað geymsluform rjóma“

Svara fyrir stóra ísmálið – „Smjör er annað geymsluform rjóma“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jakob Rolland forherðist í bælingarmálinu – Segir hættu á „einræði“ hinsegin hugmyndafræði á Íslandi

Jakob Rolland forherðist í bælingarmálinu – Segir hættu á „einræði“ hinsegin hugmyndafræði á Íslandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ráðherrar settu Verk og vit

Ráðherrar settu Verk og vit
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bróðir mannsins sem lést í íshelli í Breiðamerkurjökli segir græðgi um að kenna – „Hægt hafi verið að koma í veg fyrir þetta“

Bróðir mannsins sem lést í íshelli í Breiðamerkurjökli segir græðgi um að kenna – „Hægt hafi verið að koma í veg fyrir þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld hafin yfir Stebba Jak í Héraðsdómi Reykjaness

Réttarhöld hafin yfir Stebba Jak í Héraðsdómi Reykjaness
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vinnuslys í Korngörðum í morgun – Alvarlegur atburður að sögn lögreglu

Vinnuslys í Korngörðum í morgun – Alvarlegur atburður að sögn lögreglu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur staðfesti dóm yfir konu sem frelsissvipti og misþymdi Tinnu Guðrúnu Barkardóttur í Vinakoti

Landsréttur staðfesti dóm yfir konu sem frelsissvipti og misþymdi Tinnu Guðrúnu Barkardóttur í Vinakoti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hernaðurinn hjá Bandaríkjamönnum heldur áfram að ganga brösuglega – Eldur kom upp í stærsta skipinu

Hernaðurinn hjá Bandaríkjamönnum heldur áfram að ganga brösuglega – Eldur kom upp í stærsta skipinu