fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Fréttir

Gervigreindarmyndir að gera út af við netverja – „Gervilegar, yfirleitt frekar ljótar og sjaldnast fyndnar“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 23. mars 2026 10:30

Gervigreindin pirrar marga.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir notendur samfélagsmiðilsins Facebook eru búnir að fá sig fullsadda af því að sjá endalausar gervigreindarmyndir með færslum. Auk þess að vera orkufrekur hugverkastuldur þá er nefnt að þetta sé einnig ljótt, ófyndið og auki líkurnar á því að fólk lesi ekki færslurnar.

„Á maður að biðla til fólks að nota helst ekki gervigreindarmyndir sem skreytingar við færslur á Facebook?“ segir fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason í færslu á Facebook í gær. En hann hefur verið einn ötulasti talsmaður hérlendis gegn gervigreindinni.

Birtir hann dæmi um slíkar myndir sem honum þykir ekki mikið til koma.

„Þær eru gervilegar, yfirleitt frekar ljótar og sjaldnast fyndnar – enda hafa þær auðvitað engin höfundareinkenni, bera vott um flata „hugsun“,“ segir Egill í færslunni sem hefur fengið mikil viðbrögð. Einkum hjá þeim sem eru honum sammála og eru búnir að fá nóg af því að sjá endalausar gervigreindarmyndir á Facebook.

Brenglun nútímans

„Þessi fjandi er svo forheimskandi að ekki tekur neinu tali,“ segir blaðamaðurinn Atli Steinn Guðmundsson. „Face-verjar skipta yfir í þessa dellu í stað þess að skrifa eitthvað frá eigin brjósti (sem síðustu árin er raunar hvort sem er yfirleitt bara eitthvað neikvætt, rifrildi, tuð og drull yfir aðra sem mér finnst ekki að eigi að vera vettvangur miðilsins, ætti hér ekki frekar að ríkja jákvæð umræða og frásagnir, hitt kemur hvort sem er nánast alls staðar annars staðar orðið).“

Sjá einnig:

Atla Steini enn líkt við gervigreind – „Broslegt að sjá fólk ítrekað verða sér til skammar“

Það ber einnig vott um brenglun nútímans að Atli sjálfur hefur verið sakaður um að nota gervigreind við skrif sín, en hann er einn litríkasti penni landsins. Ásökunum sem hann hefur svarað fullum hálsi.

Skrollar framhjá

Ragnhildur Jóhanns, listakona, er einnig sammála. Hún segir að ef færsla er „skreytt“ gervigreindarmynd þá sé hún ólíklegri til þess að lesa hana.

„Mér finnst þær mjög leiðinlegar yfirleitt og því miður draga færsluna niður á lélegt plan,“ segir Ragnhildur. „Ég skil að þær eigi að skreyta textann en þær eru hræðilegar og taktlausar en ég ætla sjálf ekki að biðla til fólks að hætta þessu en þetta eykur líkurnar á að ég skrolli framhjá textanum umtalsvert!“

Vill síu á samfélagsmiðla

Ljósmyndarinn Kjartan Þorbjörnsson, eða Golli, kallar eftir því að samfélagsmiðlar bjóði upp á lausn til að sjá þetta ekki.

„Ef eitthvað væri varið í þá samfélagsmiðla sem maður er að nota væri boðið upp á einhverskonar filter til að sía út AI myndefni,“ segir hann.

Orkufrekt og stolið

Fjölmargir aðrir gagnrýna notkun gervigreindarmynda. Er meðal annars bent á að þetta sé afar orkufrekt og að miklu leyti knúið áfram af kolum og gasi. Þá sé þetta unnið úr stolnu höfundarvörðu efni og í mörgum tilfellum notað í neikvæðum tilgangi, svo sem til þess að rakka niður orðstír fólks.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heim­ilt að stofna nýj­ar nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar í Grinda­vík

Heim­ilt að stofna nýj­ar nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar í Grinda­vík
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Réttarhöld hafin yfir Stebba Jak í Héraðsdómi Reykjaness

Réttarhöld hafin yfir Stebba Jak í Héraðsdómi Reykjaness