fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

Sauð upp úr í Krónunni þegar öryggisvörður reyndi að stöðva samlokuþjóf

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. mars 2026 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað og líkamsárás. Upp úr sauð þegar öryggisvörður í verslun Krónunnar í Skeifunni reyndi að stöðva manninn vegna gruns um þjófnað.

Atvikið átti sér stað laugardaginn 4. maí 2024 en þegar lögreglumenn bar að garði héldu tveir menn, öryggisvörður og viðskiptavinur, manninum niðri. Öryggisvörðurinn sagðist hafa séð manninn við sjálfsafgreiðslukassa þar sem hann greiddi fyrir fernu af drykknum Capri Sun en hann hafi ekki greitt fyrir samloku sem hann hafi haldið á.

Vildi ekki láta gera skýrslu

Öryggisvörðurinn stöðvaði manninn þegar hann var kominn fram hjá afgreiðslukössunum og gekk maðurinn þá aftur inn í verslunina og henti samlokunni aftur inn í kæli. Öryggisvörðurinn mun hafa sagt við manninn að svona gengi þetta ekki fyrir sig og það þyrfti að gera skýrslu um þjófnaðinn.

Maðurinn virðist hafa brugðist illa við þessu, samkvæmt framburði öryggisvarðarins. Sagði hann að ekki ætti að hringja á lögreglu og að svo búnu hafi maðurinn ýtt við honum og tekið hann hálstaki með annarri hendi.

Öryggisvörðurinn sagðist hafa beðið manninn rólega um að koma með sér en ef hann myndi halda áfram myndi hann skella honum í jörðina. Sagði hann að maðurinn hefði tekið hann aftur hálstaki og þá hefði hann snúið hann niður.

Öryggisvörðurinn lýsti því fyrir dómi að maðurinn hafi sagst ætla að vera rólegur og hann því ákveðið að gefa honum annað tækifæri og reist hann við. Þegar þeir hafi verið að ganga inn í öryggisherbergi hafi ákærði tekið upp bíllykla og barið hann í höfuðið með þeim.

Þá hafi viðskiptavinur í versluninni komið til aðstoðar en ákærði þá ráðist að honum og bitið hann í öxlina. Öryggisvörðurinn tók þá manninn aftur niður með aðstoð viðskiptavinarins. Sagðist öryggisvörðurinn hafa verið með sjáanlega áverka á höfði en afþakkað aðstoð sjúkraliðs og leitað sjálfur til læknis.

Sagðist vera með kvittun

Í dómi kemur fram að lögregla hafi farið yfir myndefni úr versluninni og þar hafi maðurinn sést taka samloku eða vefju úr kæli á meðan öryggisvörður fylgdist með honum. Hann hafi greitt fyrir fernuna með síma en látið samlokuna þannig með fernunni að það liti út eins og hann hafi greitt fyrir samlokuna.

Maðurinn neitaði sök fyrir dómi og kvaðst hafa farið í verslunina til þess að kaupa samloku og drykk, greitt fyrir það og verið með kvittun. Starfsmaður verslunarinnar hafi síðan stöðvað hann og sakað hann um að hafa stolið samloku. Starfsmaðurinn hafi ýtt á bringu hans þar til hann hafi endað í gólfinu og nokkrir menn komið til að aðstoða starfsmanninn. Ákærði viðurkenndi þó að hafa bitið viðskiptavininn í hamaganginum.

Dómari komst að þeirri niðurstöðu að hafið væri yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hafi ýtt við starfsmanninum og kýlt hann í höfuðið eins og lýst er í ákæru og með þeim afleiðingum sem þar er lýst. Hins vegar taldist ekki sannað að ákærði hafi tekið starfsmanninn hálstaki eins og lýst var í ákæru. Þá var það talið hafið yfir skynsamlegan vafa að hann hefði gerst sekur um þjófnað.

Maðurinn var dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Þá var honum gert að greiða öryggisverðinum 400 þúsund krónur í miskabætur, 350 þúsund krónur í málskostnað og 109.648 krónur í sakarkostnað, samtals tæplega 860 þúsund krónur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ræstingakona lagði Hótel Akureyri – Var sökuð um þjófnað og trúnaðarbrest

Ræstingakona lagði Hótel Akureyri – Var sökuð um þjófnað og trúnaðarbrest
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Beitti úðavopni og slökkvitæki gegn kærustu sinni

Beitti úðavopni og slökkvitæki gegn kærustu sinni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans
Fréttir
Í gær

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg
Fréttir
Í gær

Starfsmaður leikskóla á Akranesi grunaður um kynferðisbrot gegn barni

Starfsmaður leikskóla á Akranesi grunaður um kynferðisbrot gegn barni
Fréttir
Í gær

Kynferðislega brenglaður raðmorðingi á leið úr fangelsi í Þýskalandi – Vildi að afmynduð líkin myndu finnast

Kynferðislega brenglaður raðmorðingi á leið úr fangelsi í Þýskalandi – Vildi að afmynduð líkin myndu finnast
Fréttir
Í gær

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“
Fréttir
Í gær

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins