

RÚV greinir frá þessu og segir að um sé að ræða athöfn þar sem framtaki hennar, Fostering the Future Together, verður hleypt úr vör. Er markmið framtaksins að tryggja velferð barna í krafti menntunar, nýsköpunar og tækni.
Skrifstofa forseta Íslands segir í svari við fyrirspurn RÚV að Björn hafi fengið boð frá Melaniu en hann sjái sér ekki fært að þiggja boðið.
Fleiri makar eru í sömu stöðu og Björn og segir RÚV frá því að eiginkona Jonasar Gahr Störe, forsætisráðherra Noregs, og Suzanne Innes-Stubb, eiginkona Alexanders Stubbs, forseta Finnlands, hafi einnig afþakkað boð Melaniu.