

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag og er vísað í svar Sjúkratrygginga við fyrirspurn blaðsins.
Þyngdarstjórnunarlyf hafa vaxið mjög í vinsælum á síðustu árum, en alls greiddu Íslendingar tæplega þrjá og hálfan milljarð króna fyrir lyfin Wegovy og Saxenda.
Ekki kemur fram í frétt blaðsins hversu margir fengu Ozempik uppáskrifað en bent er á það í umfjöllun blaðsins að samkvæmt skilgreiningu Sjúkratrygginga fellur það ekki undir flokk þyngdarstjórnunarlyfja þar sem það er almennt notað við sykursýki.
Sjúkratryggingar niðurgreiddu Wegovy og Saxanda fyrir 1.358 manns í fyrra og nam upphæðin 370 milljónum króna, að því er segir í frétt Morgunblaðsins í dag þar sem nánar er fjallað um málið.