fbpx
Laugardagur 21.febrúar 2026
Fréttir

Þurfti að fara í skurðaðgerð eftir að hafa tapað í bjórskák

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 21. febrúar 2026 20:30

Bjórskák er vinsæll drykkjuleikur en greinilega ekki hættulaus.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Slysin gera ekki boð á undan sér og sum þeirra eiga sér stað við stórundarlegar aðstæður. Eins og kemur fram í læknistímariti þurfti ungur maður að fara í skurðaðgerð eftir slys í „bjórskák“ (e. beer pong).

Greint er frá málinu í tímaritinu Cureus Journal of Medicinal Science.

Maðurinn sem er 19 ára gamall var fluttur á sjúkrahús með verk í hálsi, öndunarerfiðleika og erfiðleika við að kyngja eftir að hafa keppt í bjórskák. En það er drykkjuleikur þar sem borðtenniskúlum er kastað ofan í plastglös með bjór í.

Myndataka sýndi að hálsinn á manninum unga var bólginn að aftanverðu. Þá leit út fyrir að vera tappi af flösku fastur í hálsinum.

Kom í ljós að tappinn hafði legið í einu glasinu án þess að maðurinn vissi af honum. Þegar boltinn endaði í glasinu þurfti hann að drekka og leit ekki ofan í það með þeim afleiðingum að tappinn festist í hálsinum á honum.

Tappinn sat fastur í hálsinum. Mynd/Cureus Journal of Medicinal Science

Ákveðið var að skera manninn upp í stað þess að reyna að sækja tappann með öðrum aðferðum. Töldu læknarnir að það myndi hafa minnst áhrif á hálsinn á honum. Tókst aðgerðin vel en maðurinn var heppinn að geta andað yfir höfuð þegar hann kom á sjúkrahúsið.

Í frétt dagblaðsins New York Post um málið segir að algengast sé að börn gleypi óvart hluti sem festist í öndunarveginum. Fullorðið fólk sé helst í hættu ef það er undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vill fá að vita hvað varð um Rússa sem störfuðu fyrir Ísland

Vill fá að vita hvað varð um Rússa sem störfuðu fyrir Ísland
Fréttir
Í gær

Tæplega 20 manns fengið bætur eða starfslokasamning hjá Hafnarfjarðarbæ

Tæplega 20 manns fengið bætur eða starfslokasamning hjá Hafnarfjarðarbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Það er nú svo merkilegt með hann Braga Guðbrandsson, að hann virðist ýmist ekki muna nokkurn skapaðan hlut eða yfirhöfuð kannast við“

„Það er nú svo merkilegt með hann Braga Guðbrandsson, að hann virðist ýmist ekki muna nokkurn skapaðan hlut eða yfirhöfuð kannast við“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Afhentu 17 nýja sjúkrabíla

Afhentu 17 nýja sjúkrabíla